140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[14:47]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Margt athyglisvert hefur komið fram strax í upphafi þessa máls. Ég held að það sé ljóst að hæstv. ráðherra er búin að átta sig á því að hún stýrir minnihlutastjórn í landinu, í það minnsta hefur ekki verið hægt að svara því hvort klárlega sé meiri hluti innan stjórnarflokkanna fyrir þessum breytingum. Það er svo sem ekkert nýtt að um það séu einhverjar efasemdir.

Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í er í fyrsta lagi: Hvers vegna var ekki leitað eftir neinu samstarfi eða samráði við stjórnarandstöðuna um breytingar á Stjórnarráðinu? Það var ekki gert.

Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra út í, í ljósi þess sem stendur á bls. 4 í þessu plaggi þar sem er rætt um að styrkja þurfi efnahags- og viðskiptaráðuneytið, „auka getu þess til greiningar, áætlanagerðar og samhæfingar“: Mun það ekki kalla á neina aukastarfsmenn í fjármálaráðuneytinu að færa þessi verkefni yfir á ráðuneytið? Getur starfsfólk fjármálaráðuneytisins bætt þessum verkefnum á sig eða er (Forseti hringir.) gert ráð fyrir að fjölga starfsfólki þar?