breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Að mínu viti, ég segi bara mína skoðun á þessu, væri nær að efla efnahags- og viðskiptaráðuneytið, ekki síst í ljósi þeirra verkefna sem bíða á sviði efnahagsmála og varðandi bankakerfið á næstu árum. Ég held að það sé ekki gott skref sem verið er að stíga hér.
Ég átta mig heldur ekki á þeim sjónarmiðum sem liggja þarna til grundvallar. Mér sýnist það hljóta að vera nákvæmlega sami mannafli sem þarf til að taka við þeim verkefnum sem þarna um ræðir.
Ég ítreka líka þá spurningu sem ég bar fram áðan og hæstv. forsætisráðherra náði ekki að svara. Hvers vegna var ekki leitað eftir einhverri samstöðu eða samráði við stjórnarandstöðuna um þessar breytingar? Nú er alveg ljóst að ný ríkisstjórn mun taka við völdum eftir næstu kosningar og það gæti orðið hennar fyrsta verkefni að breyta nákvæmlega því sem nú er verið að hræra í ári fyrir kosningar. Mér finnst (Forseti hringir.) svolítið skrýtin vinnubrögð að fara þessa leið.