breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Hæstv. forseti. Ég vildi í upphafi spyrja hæstv. umhverfisráðherra, sem hefur auðvitað ágæta innsýn í nákvæmlega það svið, hvað hún sjái fyrir sér í sambandi við eflingu umhverfisráðuneytisins með því að bæta við auðlindanýtingarmálunum eins og hér er gert ráð fyrir. Ég spyr vegna þess að það er farið mjög almennum orðum um þetta í greinargerð með þingsályktunartillögunni en ég þykist vita að hæstv. ráðherra hljóti að hafa skoðað þetta frá sínum bæjardyrum eða síns ráðuneytis. Að minnsta kosti er talað eins og verið sé að færa umhverfisráðuneytinu verulega aukin verkefni sem væntanlega kalla á aukinn mannskap, meiri umsvif eða tilfærslu einhverra stofnana eða eitthvað þess háttar. Það er ekki fjallað um þetta á neinn hátt í greinargerð með tillögunni en ég trúi ekki öðru en að það hafi verið skoðað að einhverju leyti af hálfu ráðuneytisins.
Hitt atriðið sem ég vildi spyrja um eða kannski tvö atriði. Annað er það sem hæstv. ráðherra nefndi, að mikilvægt væri að sjónarmið umhverfisins, sjónarmið sjálfbærrar þróunar og þess háttar, væru höfð í huga við ákvarðanir í atvinnuuppbyggingu, og nefndi að sumir hefðu áhyggjur af því að slík þekking eða viðhorf væru fyrst og fremst fyrir hendi í umhverfisráðuneytinu. Er þá rétta leiðin að flytja fleiri verkefni til umhverfisráðuneytisins? Væri ekki alveg eins hægt að flytja þekkinguna, sérhæfinguna eða viðhorfin sem hæstv. ráðherra talaði um til þeirra ráðuneyta sem fara með auðlindanýtingu í dag? Og þá spyr ég: Telur hæstv. ráðherra að þessi tilfærsla auðlindanýtingar til umhverfisráðuneytisins muni breyta miklu varðandi ákvarðanir um nýtingu auðlinda Íslands?