breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni gagnlegar spurningar. Fyrst varðandi síðari spurninguna, um hvort þá væri rétta leiðin að stækka umhverfisráðuneytið. Eins og ég ræddi áðan er þetta tilhneiging sem umhverfisráðherrar mjög víða tala um að það sé hætta á því að málaflokkurinn einangrist. Ég tel að sú hætta sé ekki fyrir hendi hér. Við erum, og ég fann það raunar í samtölum mínum við ýmsa af þeim ráðherrum sem þarna voru, að mörgu leyti til fyrirmyndar í einmitt vinnubrögðum þvert á ráðuneyti. Ég vil til dæmis nefna samstarf við iðnaðar- og orkuráðuneyti um orkustefnumál og orkuskiptamál, samstarf ráðuneyta umhverfis- og samgöngumála varðandi samgönguáherslur og almenningssamgöngur, samstarf við fjármálaráðuneytið um græna skattlagningu o.s.frv. Þessi hætta er því kannski ekki fyrir hendi hér.
Það er sannarlega rétt að það gildir um umhverfismálin rétt eins og til að mynda, svo ég nefni annan málaflokk sem er mér mjög kær, kynjajafnréttismálin að þau þurfa að vera til staðar alls staðar, ekki bara í einu tilteknu ráðuneyti heldur alls staðar.
Varðandi fyrri spurninguna, um nákvæma útfærslu á því hvernig þessari ákvörðun er fyrir komið, þ.e. þessari keðju frá rannsóknum yfir í ráðgjöf og þaðan yfir í ákvarðanir um nýtingu, þá hefur hugsunin verið sú að rannsóknar- og ráðgjafarþátturinn sé í raun og veru staðsettur í umhverfisráðuneytinu og stofnunum þess en ákvarðanatökuþátturinn og nýtingarþátturinn sé eftir sem áður í ráðuneyti atvinnumála. Já, ég tel að þarna verði um betri og ígrundaðri ákvarðanir að ræða og það sé fyrst og fremst atvinnulífinu til framdráttar og sjálfbærri þróun.