breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherra svörin. Ég hefði þó kosið að þau væru öllu ítarlegri, þ.e. þegar spurt var um það aukna umfang sem væntanlega yrði fyrir hendi hjá umhverfisráðuneytinu var ég bæði að tala um verkefni og starfslið og um stofnanir og þess háttar.
Væntanlega hefur verið mótuð einhver hugmynd um það þó að það sé kannski ekki fullbúin áætlun eða þess háttar en væntanlega hefur í aðdraganda þessarar tillögu verið farið í einhverja skoðun á þessu, sérstaklega í ljósi þess að þetta er breyting sem hefur með einum eða öðrum hætti legið í loftinu í nokkur ár, eiginlega allt þetta kjörtímabil. Ég vænti þess að hæstv. ráðherra geti skýrt aðeins nánar hvað megi búast við miklum verkefnatilflutningi til umhverfisráðuneytisins, ef svo má að orði komast, aukningu í starfsmannafjölda og tilfærslu stofnana.