140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[15:39]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er dálítið sérkennilegt að sú þingsályktunartillaga sem hér er rædd er skrifuð í miklum véfréttastíl. Þar er eitthvað sagt með almennum orðum, maður hlustar síðan á hæstv. ráðherra og þeir gefa manni pínulítið meiri innsýn í það sem ætlunin er að gera en svara ekki spurningunum.

Hæstv. umhverfisráðherra talaði um að meiningin með þessum breytingum sé að efla starfsemi umhverfisráðuneytisins og í greinargerð með tillögunni er til dæmis talað um að samstarf umhverfisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eigi að formgera með „mótun nýrrar aðferðafræði og tækja“. Þetta er dálítið einkennilegt orðalag. Af hverju er ekki hægt að segja mönnum nákvæmlega hvað ætlunin sé að gera?

Hæstv. ráðherra sagði áðan að ætlunin væri að taka rannsóknar- og nýtingarþáttinn og færa hann inn í umhverfisráðuneytið. Hvað þýðir þetta á mannamáli? Er verið að tala um að taka starfsemi stofnana á borð við Veiðimálastofnun, Hafrannsóknastofnun eða einhverra stofnana iðnaðarráðuneytisins og flytja þær í heilu lagi eða verkefni úr þeim undir umhverfisráðuneytið? Af hverju er ekki hægt að segja þetta beinum orðum þannig að við sem kunnum ekki á þetta innvígða orðfæri sem hæstv. ríkisstjórn er búin að tileinka sér getum reynt að skilja það sem ætlunin er að gera? Er ekki hægt að segja okkur það svart á hvítu hver er hugmyndin, hvernig á að standa að hlutum sem lúta að auðlindanýtingu, ákvörðun um heildarafla, ýmsum öðrum slíkum þáttum? Er ætlunin að gera þarna breytingu á? Verða þessi verkefni með einhverjum hætti flutt frá þessum stofnunum eða frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti og hinu nýja atvinnuvegaráðuneyti og til umhverfisráðuneytisins? Þetta eru hlutir sem við þurfum að fá klár svör við áður en þessi umræða getur haldið mikið lengra áfram.