140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[15:41]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég skil vel að hv. þingmanni gremjist að þetta sé ekki allt saman borið fram með teskeið en hins vegar er hér um að ræða breytingar sem varða daglegt starfsumhverfi gríðarlegs fjölda fólks. Slíkar ákvarðanir eru ekki teknar ofan frá, heldur eru þær teknar í samstarfi við þá sem verkin vinna. Það er í anda nútímalegra stjórnunarhátta að gera það þannig. Úrvinnslan hlýtur að verða í samstarfi við bæði ráðuneytin og þær stofnanir sem undir þau heyra.

Ég gat þess áðan í framsögu minni að menn hefðu almennt, og þá er ég að tala um á heimsvísu, áhyggjur af því ef umhverfissjónarmiðin einangruðust of mikið. Þess vegna er mikilvægt og ekki síst í Stjórnarráði Íslands þar sem við erum tiltölulega afmörkuð hvert um sig í okkar ráðuneytum, og ég veit að hv. þingmaður þekkir þann veruleika, að vera svolítið brött í því að vinna þvert á ráðuneyti og það kann að vera mikið gæfuspor að það sé formgert og skýrt samstarfið milli umhverfis- og auðlindaráðuneytis og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis þegar kemur að stórum ákvörðunum sem varða nýtingu. En varðandi það sem hv. þingmaður sagði áðan þá hafði hann ekki rétt eftir mér að ég segði að rannsóknar- og nýtingarþátturinn ætti að færast til umhverfis- og auðlindaráðuneytis, heldur var um það að ræða að meginhugsunin er sú að rannsóknir og ráðgjöf séu umhverfis- og auðlindamegin en nýtingarákvarðanir séu eftir sem áður atvinnuvegamegin.