breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Almennt um stjórnarráðsbreytingar, þá finnst mér að ríkisstjórn í upphafi kjörtímabils hafi víðtækar heimildir til að haga Stjórnarráðinu eins og hún telur þurfa. Ég sé enga ástæðu til að mæla gegn því og hef alltaf stutt ríkisstjórnina við þær aðstæður.
Að því er varðar breytinguna í atvinnuvegaráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti er hún skrifuð inn í stjórnarsáttmála og útfærð í þaula þar. (Gripið fram í.) Þar af leiðandi eru efnisleg rök fyrir þeirri breytingu og hún hefur líka verið unnin mjög ítarlega. Þessi síðasta breyting hér er hins vegar allt annars eðlis. Það er í grundvallaratriðum annað að róta í umgjörð hagstjórnar í landi sem upplifði skipbrot hagstjórnar fyrir örfáum árum og taka algjöra U-beygju frá því sem menn hafa sagt fyrr á kjörtímabilinu.