140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[16:32]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Nú er eitt ár í kosningar og menn eru að gera miklar breytingar á Stjórnarráðinu, verulegar breytingar. Þær verða væntanlega ekki komnar í framkvæmd þegar kosningar verða. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér stjórnmál og yfirleitt framkvæmd ríkisvaldsins ef menn ætla að fara að gera svona æfingar mörgum sinnum á kjörtímabili? Hvar er eiginlega stöðugleikinn og hvernig eiga embættismenn að hegða sér þegar þeir vita ekki hvernig morgundagurinn verður? Og um hvað eiga kjósendur að kjósa í vor þegar allt er í einhverju uppnámi í ráðuneytum og menn vita ekki hver fer með efnahagsstjórnina eða hver fer með þetta ráðuneyti og hver fer með hitt og hvar málin heyra undir? Ég vil spyrja hv. þingmann: Er þetta ekki orðin verulega slæm verkstjórn og verulega slæm stjórnsýsla?