140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[16:50]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Búið er að vinna heilmikla greiningarvinnu og það er til heilmikið af vinnugögnum sem ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir að ekkert vandamál sé að reiða fram í viðkomandi þingnefnd þar sem menn hafa til dæmis í ljósi reynslunnar, eins og áður sagði, byggt á svipaðri nálgun varðandi flokkun viðfangsefna og verkefna um greiningu á skipuritum ráðuneytanna og sjá hvernig þetta passar saman og hvernig þessu yrði svo best fyrir komið í nýju umhverfi. Það er til mjög rækileg upplistun á viðfangsefnunum og flokkun á þeim þar sem menn hafa mátað og borið saman hvernig þetta fer best. Þetta eru að sjálfsögðu mikilvæg gögn þegar kemur að því að undirbyggja nýjan forsetaúrskurð um verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins sem má segja að reki smiðshöggið á breytingar af þessu tagi, þegar hann er gefinn út, þannig að ég tel að undirbúningurinn sé á góðum rekspöl. Ég hef auðvitað verið með í þessu og í ráðherranefnd um málið og á þykkar möppur af vinnugögnum af þessu tagi þar sem bæði er skoðað okkar eigið landslag en líka gerður samanburður við nágrannalöndin og margt fleira fróðlegt sem mun verða gagnlegt fyrir þingmenn að skoða.