breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Forseti. Það hefur verið mjög fróðlegt að fylgjast með þeirri umræðu sem hefur farið fram hér í dag. Hún hefur vakið með manni bæði hlátur og grát.
Þetta mál gengur út á að gera breytingar á Stjórnarráðinu og aðallega hefur verið rætt um að stofna tvö ný ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Mér heyrðist á ræðu hæstv. fyrrverandi fjármálaráðherra, núverandi „allsherjarráðherra“, að í bígerð væri að stofna eitt nýtt ráðuneyti til viðbótar sem yrði svokallað móðurráðuneyti. Það væri fróðlegt að fá að skyggnast í þær möppur sem hæstv. ráðherra hefur um greininguna að baki því. Það væri mjög fróðlegt að fá að sjá og heyra þær hugmyndir sem þar eru í gangi.
Það sem vekur mig til umhugsunar í þessu efni hefur komið fram og var rækilega undirstrikað í ágætri ræðu hv. þm. Árna Páls Árnasonar, þ.e. tímasetningin á þeim breytingum sem verið er að gera og í hvaða samhengi þær eru við þær áherslur sem núverandi ríkisstjórnarflokkar lögðu til grundvallar samstarfi sínu vorið 2009.
Við erum hér á vorþingi að ræða grundvallarbreytingar í nokkrum lykilráðuneytum, þar með talið einu gríðarlega mikilvægu ráðuneyti sem fjallar um efnahagsmál. Með þessum breytingum er ætlunin eins og segir í niðurlagi greinargerðar með þingsályktunartillögunni sem ég ætla, með leyfi forseta, að vitna hér orðrétt til:
„Með þessum fyrirhuguðu breytingum á ráðuneytum, sem ætlunin er að komi til framkvæmda 1. september 2012, og afleiddum breytingum er lögð lokahönd á þá endurskipulagningu Stjórnarráðsins sem ríkisstjórnin boðaði í upphafi kjörtímabilsins.“
Menn eru núna að ræða með nokkurra vikna fyrirvara breytingar á Stjórnarráðinu með greinargerð í þingsályktunartillögu sem heldur ekki vatni. Það er kallað eftir rökstuðningi við þær breytingar sem lagðar eru fram, það er vitnað til þess af hæstv. ráðherrum hér, forsætisráðherra, umhverfisráðherra og efnahags- og viðskiptaráðherra, að það sé til fullur rökstuðningur með þessu máli. Hvers vegna í ósköpunum eru gögnin þá ekki lögð fram?
Maður leyfir sér að efast um það að rökstuðningurinn fyrir þessu sé fyrir hendi þegar maður heyrir stjórnarliða tala með þeim hætti sem þeir hafa gert. Enn fremur leyfir maður sér að efast um sameiginlegan skilning stjórnarliða á þeirri tillögu sem hér liggur fyrir þegar maður hlýðir á hæstv. forsætisráðherra mæla fyrir tillögunni og hæstv. umhverfisráðherra því að áherslunum sem frá þeim koma ber ekki saman. Hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra mótmælir þessum orðum mínum en því miður var hann ekki viðstaddur þegar hæstv. forsætisráðherra flutti framsögu sína þannig að hann er tæpast dómbær á það. (Gripið fram í.) Ég beini þeim orðum til hæstv. ráðherra að taka til máls síðar í ræðu ef hann kærir sig um, hann hefur greinilega nóg að ræða í þessum efnum og nóg af skjölum til að lesa upp fyrir þingheim ef hann ætlar að draga fram skjalabunkann sinn og möppusafnið sem hann vísar til þegar hann mælir fyrir þessu makalausa máli. (Gripið fram í.) Við þingmenn hljótum að fá gögnin þegar umræðunni lýkur og er sjálfsagt mikil tilhlökkun víða að fá að sjá þau, bæði meðal stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. (Gripið fram í.) Þegar mælt er fyrir þeim tillögum til breytinga — hæstv. ráðherra, með fullri virðingu, ég bendi þér enn og aftur á að koma bara í ræðu og haltu áfram að standa (Forseti hringir.) fyrir máli þínu.
(Forseti (ÁI): Forseti beinir þeim tilmælum vinsamlega til hv. þingmanns að beina orðum sínum til forseta, ekki til þingmanna í sal.)
Þau vinsamlegu tilmæli hæstv. forseta eru hér með tekin til greina og hv. þingmaður sá er hér stendur skal reyna að fylgja þeim út í æsar.
Það ber hins vegar á því í rökstuðningnum með þessari þingsályktunartillögu að þar eru settar fram mjög losaralegar hugmyndir svo ekki sé meira sagt. Ég nefni hér eitt tiltekið atriði sérstaklega þar sem hluti af rökstuðningnum fyrir því að búa til þetta umhverfis- og auðlindaráðuneyti er sá að, með leyfi forseta — ég ætla að vitna orðrétt í greinargerðina:
„Ráðuneytið mun m.a. fá það hlutverk að setja viðmið um sjálfbærni sem ætlað er að tryggja ábyrga umgengni við náttúruna og allar auðlindir hennar.“
Um þetta eru allir sammála. Hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra bar það hér upp á þingmenn stjórnarandstöðunnar að vilja ekki taka undir þau sjónarmið sem hæst eru á baugi um sjálfbæra nýtingu fiskstofna. Það er langur vegur frá því að svo sé. Aðspurð sagði hæstv. umhverfisráðherra að engar hindranir væru í vegi fyrir því í núgildandi lögum að þannig væri unnið af hálfu ráðuneytis hennar. Þetta eru engin rök fyrir því að steypa þessu saman með þessum hætti. Ég hjó líka eftir því, ef við nefnum stofnunina Hafró, að það var misræmi í svörum hæstv. forsætisráðherra og umhverfisráðherra í þeim efnum. Hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra var spurður út í það áðan. Hann orðaði það svo snyrtilega, með leyfi forseta, að „fyrsta kastið“ yrði Hafró undir atvinnuvegaráðuneytinu. Þá getur maður spurt í ljósi orða hæstv. ráðherra: Hversu langt er það kast? (Gripið fram í.) Hversu langur tími er þetta, er þetta smákast eða er þetta móðurkast? Hvaða orð á að hafa yfir þetta og hversu langur tími er þetta? Þetta vekur upp spurningar og ég tek heils hugar undir það að í ljósi þess hvernig þingsályktunartillagan sjálf er orðuð er nánast ógjörningur fyrir þingmenn að fallast á þá ósk sem í henni felst til þingsins frá hæstv. ríkisstjórn. Þar er farið fram á, og ég leyfi mér að vísa aftur og vitna orðrétt til tillögunnar sem borin er upp af hæstv. forsætisráðherra. Hún er orðuð svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar, með vísan til 2. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, að styðja fyrirhugaða breytingu …“
Hér er í tillögu hæstv. ríkisstjórnar farið fram á það við þingið að Alþingi styðji fyrirhugaðar breytingar. Í ljósi þessarar óskar hæstv. ríkisstjórnar er ekkert óeðlilegt við það að þingið geri kröfu til þess að það sé til muna betur vandað til málsins en raun ber vitni. Raunar kýs ég að skilja orðræðu hæstv. ráðherra sem hér hafa tekið til máls sem einbeittan vilja til að upplýsa þingið betur en hér er gert og um leið felst í því ákveðinn áfellisdómur yfir greinargerðinni með þeirri tillögu sem liggur fyrir. Þannig kýs ég að skilja þetta, hæstv. forseti, þó að við beri nokkrar mótbárur frá hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra sem ver eðlilega þessa þingsályktunartillögu með oddi og egg, gerir það eins vel og hann getur en vörnin tekst honum ekki nægilega vel.
Ég vek athygli á því sem ég nefndi hér áðan að það eru atriði í hinum svokallaða rökstuðningi, í greinargerðinni, fyrir því að ráðast skuli í þessar breytingar sem vel er hægt að framkvæma án þess að komi til þeirra breytinga sem kallað er eftir að fá heimild til að framkvæma. Það er engin forsenda fyrir því að gera þessar breytingar á Stjórnarráðinu, þær eru ekki forsenda þess að skipa hóp óháðra sérfræðinga um sérstaka sjálfstæða efnahagsráðgjöf, það þarf ekki að gera breytingar á lögum til þess. Þetta er fyrirkomulag sem er þekkt meðal annars í Svíþjóð og fjárlaganefnd átti þess kost að kynna sér um daginn. Ég tek alveg undir að þessi hugmynd er af hinum besta toga og þarft að taka ítarlega umræðu um málið, ekki síst í ljósi þess hvernig staða efnahagsmála okkar er, en það er engin þörf á því að leggja fram þessa þingsályktunartillögu til að koma þessu máli fram á veg, frá því er langur vegur. Það eru fleiri atriði í tillögunni sem engin þörf er á að ná fram með því að standa í þessum tillöguflutningi. Ríkisstjórnin getur með réttu dregið til baka þá tillögu sem hér liggur fyrir, unnið hana til muna betur en hún ber vitni um, unnið hana með þeim hætti að draga fram þau gögn sem ríkisstjórnin virðist eiga og hafa í handraðanum og vinna málið þannig að okkur sé einhver sómi að. Við skulum þá sameinast um að einbeita okkur að því að ljúka málinu með þeim tilskilda sóma sem Stjórnarráðinu (Forseti hringir.) ber en ekki þessu hálfkáki.