breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Hæstv. forseti. Það hefur verið svolítið sérkennilegt að fylgjast með umræðunni í dag um þessa tillögu til þingsályktunar um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Hér hafa nú þegar talað þrír núverandi ráðherrar og einn fyrrverandi fyrir hönd stjórnarmeirihlutans og það verður að segjast alveg eins og er að ekki er mikill samhljómur í málflutningi þeirra.
Það kom fram í ræðu hv. þm. Árna Páls Árnasonar að þegar hann var efnahags- og viðskiptaráðherra og sat í ríkisstjórn hefði aldrei komið til tals í þeirri ríkisstjórn að færa hagstjórnina í fjármálunum, Fjármálaeftirlitið og annað í þeim dúr undir fjármálaráðuneytið og að stokka þetta upp, heldur hefði verið unnið að því að styrkja hagstjórnina og eftirlit með fjármálamörkuðunum eins og kostur var eftir hrunið sem hér varð haustið 2008.
Þeirri spurningu hefur ekki verið svarað þó að henni hafi ítrekað verið beint til hæstv. forsætisráðherra og einnig hv. þingmanns, af hvaða ástæðum þessar breytingar eru lagðar til og á hvaða grunni. Ég ætla að leggja út af því í ræðu minni á þeim stutta tíma sem ég hef og fjalla aðeins um það af hverju þetta er gert. Það er kannski rétt að það komi fram í máli mínu, eins og reyndar hefur komið fram í máli ansi margra, að sú greinargerð sem fylgir þessum viðamiklu breytingum er ansi rýr. Það hefur líka komið fram að til séu mun viðameiri gögn sem ekkert mál sé að leggja fram en þau fylgja ekki. Nú vitum við ekki hvort í þeim standi nákvæmlega það sem svari þeim spurningum sem við höfum varpað fram í umræðunni í dag; hverjir unnu þessa greiningu og á hvaða forsendum var hún unnin. Að hluta til eru þessar breytingar kannski ekki í órökréttu framhaldi af því sem ríkisstjórnin hefur verið að gera, hún hefur hringlað með Stjórnarráðið allt kjörtímabilið, og að einhverju leyti með tilvísun til þeirrar stjórnaryfirlýsingar um samstarf flokkana — mig minnir að hún hafi heitið yfirlýsing en ekki sáttmáli, þeir náðu ekki saman um það í upphafi — um að breyta hluta af Stjórnarráðinu. En það að breyta og færa látlaust til í stjórn efnahagsmála kom augljóslega ekki fram í upphaflegri samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna og virðist hafa komið til á endasprettinum. Því er ósvarað og ég held að við verðum að fá svar við því af hverju er verið að fara af stað í þetta verkefni.
Í kjölfar rannsóknarskýrslu Alþingis var skipaður eins og þekkt er þingmannahópur til að fara yfir skýrsluna og meta hvað væri rétt að gera breytingar á. Í þeirri þingsályktun hópsins sem var samþykkt 63:0 og kennd við það — það er ekki algengt að allir þingmenn séu mættir og standi saman um breytingar þó að það komi fyrir — var farið yfir að mjög víða hefði verið pottur brotinn í stjórnsýslunni á mörgum sviðum en þó allra mest á sviði fjármálaeftirlits. Það hefði þurft að fylgja eftir hlutum, einfaldlega tala saman og skýra og bregðast við stöðugt breyttum forsendum og ástæðum sem leiddu síðan til þess að hér varð efnahagshrun, bankahrun.
Ein af þeim niðurstöðum sem kom fram í þingmannaskýrslunni og var samþykkt, var að gerð yrði stjórnsýsluúttekt á Fjármálaeftirlitinu og einnig á Seðlabankanum. Það átti ekki að rannsaka hvernig þessar stofnanir hefðu unnið fyrir hrun heldur var hugmyndin sú að gerð yrði úttekt á þeim eftir hrun, eftir að menn höfðu brugðist við og breytt lögum og reglum. Með slíkri stjórnsýsluúttekt yrði athugað hvort stofnanirnar væru komnar með þau tæki og tól sem þær þyrftu og hvort þær notuðu þau úrræði sem þær hefðu sannarlega á sínum snærum. Einnig átti að vera innbyggt í þá úttekt og kom fram í umræðu um þetta mál í þingmannanefndinni og í þinginu að þar með þyrfti að skoða hvort eðlilegt væri að sameina Fjármálaeftirlitið við Seðlabankann og að þetta yrði ein stofnun eða hvort hún ætti að vera í tvennu lagi.
Það kom fram í andsvari og umræðum við hv. þm. Árna Pál Árnason að það sem hefði skort í þessa samþykkt á sínum tíma væri að fá fjármagn frá Alþingi til að fara í slíka stjórnsýsluúttekt. Ég spyr nú, frú forseti: Var ríkisstjórninni ekki í lófa lagið að koma með þá tillögu inn í fjárlagagerðina strax haustið 2010, ef ekki við síðustu fjárlagagerð haustið 2011, að settir yrðu fjármunir í þá úttekt vegna þess að það væri grunnforsenda fyrir því að menn gætu tekið einhverja vitræna rökfræðilega ákvörðun um hvernig koma ætti fyrir þessum málaflokki? En það var ekki gert og núna, mér liggur við að segja korter fyrir þrjú eins og stundum er sagt, er lögð fram tillaga til þingsályktunar um að breyta þessu bara sisvona án nokkurs undirbúnings og halda áfram með þær breytingar sem áður hafa verið ræddar um atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti annars vegar og hins vegar umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
Ég verð að segja alveg eins og er, frú forseti, að þessi vinnubrögð eru einfaldlega ekki nægjanlega góð, þau eru ekki nægilega undirbyggð. Ég hef reyndar alla tíð haft þá skoðun að ekki sé skynsamlegt að skipta upp í atvinnuvegaráðuneyti annars vegar og auðlinda- og umhverfisráðuneyti hins vegar þó svo að fyrir því séu einhverjar fyrirmyndir á Norðurlöndunum. Ég nefndi í stuttu andsvari áðan hvernig hlutum væri fyrir komið í löndum þar sem meginatvinnustarfsemi þjóðarinnar byggðist á auðlindanýtingu, og líka af hvaða stærðargráðu við erum, fólk verður að rifja það upp öðru hverju að við erum aðeins 320 þúsund manna þjóð. Er skynsamlegast að steypa ráðuneytum saman í form sem við þekkjum frá Vestur-Evrópu eða Mið-Evrópu eða hugsanlega frá einhverjum Norðurlandanna sem eru mun stærri þjóðir? Eða ættum við að horfa meira til landa eins og Grænlands og Færeyja, Kanada og Noregs? Auðvitað er fyrirkomulagið mismunandi í öllum þessum löndum en ég get ekki séð að það eitt að þannig sé það annars staðar á Norðurlöndunum eða í Evrópu sé forsenda fyrir breytingum. Mér finnst það ekki vera lógískur grunnur fyrir að breyta stjórnkerfinu á Íslandi vegna þess, þegar litið er til atvinnustarfsemi okkar á Íslandi, að sjávarútvegurinn er til að mynda langmikilvægasta atvinnugrein landsins, gríðarlega umfangsmikil, bæði í landstekjum og einnig hvað varðar önnur umsvif í landinu. Þannig hefur til dæmis komið fram að sjávarklasinn, þ.e. allt sem tengist sjávarútveginum, velti á síðastliðnu ári um 400 milljörðum og þar störfuðu um 35 þús. manns. Það er allt önnur mynd en menn hafa viljað bregða upp af þeirri atvinnugrein, að þar starfi sífellt færri og færri við veiðar og vinnslu en það er alveg lógískt vegna þess að sú leið hefur verið farin, það er þjóðhagslega hagkvæmt að færa störfin frá þeim frumgreinum í atvinnustarfseminni yfir í tæknilegri og flóknari, verðmætari störf. Þess vegna er greinin miklu stærri en menn hafa viljað vera láta á liðnum árum. Með tilliti til íslenskra aðstæðna ætti þar af leiðandi að segja: Það er kannski þörf á því að hafa sérstakt ráðuneyti sjávarútvegs og landbúnaðar og hafa iðnaðinn og aðra atvinnustarfsemi í öðru ráðuneyti. Það getur vel verið að það sé miklu skynsamlegra en að segja: Af því að þetta er svona á Norðurlöndum eða í Evrópu þá á þetta að vera þannig.
Er það kannski ástæðan fyrir því að ekki fæst ekki svar við því hvers vegna við séum að fara í þessar formbreytingar, er það krafa frá Evrópusambandinu? Samanber bréf Evrópuþingsins eða ályktun (Forseti hringir.) frá því í fyrra þar sem því var fagnað sérstaklega að vel gengi að breyta stjórnkerfinu í anda þess sem það vildi.