140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[17:33]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég er algjörlega sammála og ég get einnig tekið undir það sjónarmið hv. þingmanns að þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum sé eðlilegt, hafi menn einhverjar aðrar áherslur um hvernig þeir vilji koma fyrir málaflokkum og slíkt, að breytingarnar fari fram í upphafi kjörtímabils en ekki í andarslitrum ríkisstjórnarinnar eins og er í þessu tilfelli og liggur alveg klárt fyrir að þessi ríkisstjórn mun ekki sitja til kosninga hvenær sem þær svo verða.

Hv. þingmaður á sæti í hv. atvinnuveganefnd og það kom fram hjá hæstv. allsherjarráðherra áðan að hann gat ekki svarað því afgerandi hvar til dæmis Hafrannsóknastofnun yrði vistuð eftir breytingarnar á ráðuneytunum, þ.e. hvort Hafrannsóknastofnun yrði undir nýju auðlindaráðuneyti eða atvinnuvegaráðuneytinu. Hann svaraði sem svo að það ætti kannski að bíða eftir niðurstöðu Vísinda- og tækniráðs sem kemur kannski eftir einhver ár. Það segir kannski allt sem segja þarf um vinnubrögðin og að hve miklu leyti er búið að hugsa þetta fram í tímann. Því spyr ég hv. þingmann hvort honum fyndist ekki eðlilegt að svona spurningu væri bara svarað afgerandi og menn væru búnir að sjá fyrir hvernig ákveðnar stofnanir ættu að vera og hvar vistaðar og hvernig yrði utan um þær haldið vegna þess að það er mjög mikilvægt að það liggi alveg klárt fyrir.

Síðan langar mig að spyrja hv. þingmann, en það er kannski ósanngjarnt, ég geri mér grein fyrir því að hann getur kannski ekki svarað þessu, hver sé í raun ástæðan fyrir þeirri U-beygju sem ríkisstjórnin tekur. Þá á ég við upprunaleg markmið um að styrkja efnahagsráðuneytið. Margir stjórnarliðar hafa haldið innblásnar ræður um hvað það væri mikilvægt að gera það. Síðan tekur ríkisstjórnin algjöra U-beygju og hefur ekki sýnt á nein spil með það, þótt hæstv. allsherjarráðherra hafi reynt að færa fyrir því rök, (Forseti hringir.) hvernig af því megi verða hagræði.