140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[17:48]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar til að fá að vita afstöðu hv. þingmanns til nokkurra mála. Í fyrsta lagi hvort hv. þingmaður sé andsnúinn öllum hugsanlegum breytingum á Stjórnarráði Íslands, hvort hv. þingmaður telji að við höfum náð einhverju stjórnsýslulegu hámarki hvað varðar þau mál og lengra verði ekki gengið, það hafi náðst einhver fullkomnun sem ekki verði bætt. Sér hv. þingmaður einhverja ágalla á fyrirkomulaginu og ef svo er, hverja og hvernig á úr þeim að bæta?

Ég man eftir blaðaviðtali við hv. þingmann haustið 2011 þar sem hv. þingmaður segir orðrétt, með leyfi forseta: „Heilt yfir finnst mér stjórnvöld vera að gera allt of víðtækar breytingar …“ Er það skoðun hv. þingmanns að verið sé að gera allt of miklar breytingar með því sem hér er verið að fjalla um og ef gera á einhverjar breytingar, í hverju telur hv. þingmaður að þær eigi að vera fólgnar?

Ef ég man rétt var það niðurstaða rannsókna sem gerðar voru á orsökum og afleiðingum efnahagshrunsins 2008 að stjórnsýslan hefði verið meira og minna í molum. Mér sýnist það hafa komið fram í þeirri skýrslu jafnhliða því sem kom fram í vitnaleiðslu fyrir landsdómi á dögunum að það var talsverð óvissa um undir hverja málin heyrðu og hver fór með forræði mála, t.d. efnahagsmála sem hv. þingmaður nefndi áðan að hefðu verið eitthvað á forræði forsætisráðherra sem hefði síðan gert þá miklu og góðu ráðstöfun, að mati hv. þingmanns, að ráða sér efnahagsráðgjafa sem reiknaði okkur síðan alveg fram af bjargbrúninni svo það tókst ekki sérstaklega vel í því. (Gripið fram í.) Ég er að tala um þann forsætisráðherra sem þá var og þann efnahagsráðgjafa sem þá var. Mér sýnist að leikið hafi dálítill vafi á því undir hvaða ráðuneyti mál heyrðu þá, undir hvaða ráðherra, (Forseti hringir.) og það sé ekki til eftirbreytni að halda sig við það (Forseti hringir.) sem þá var og reyndist illa.