breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það leyndi sér ekki að hann hafði ekki mikið álit á þeirri tillögu sem við erum að ræða hér. En einhverja skoðun hefur þingmaðurinn væntanlega á þessum málum samt sem áður. Hér hefur í dag einhverra hluta vegna talsvert verið rætt um Hafrannsóknastofnun umfram aðrar stofnanir, hvar hún eigi að vera í stjórnkerfinu, undir hvaða ráðuneyti o.s.frv., og mig langar að spyrja hv. þingmann þessarar spurningar: Hvar innan stjórnkerfisins telur hv. þingmaður til dæmis að stofnun eins og Hafrannsóknastofnun eigi að vera? Hvers konar stofnun er Hafrannsóknastofnun? Hvað gera menn þar á daginn þegar þeir mæta í vinnuna þegar þeir eru búnir að stimpla sig inn og fara að vinna? Við hvað vinna menn þar? Er þetta eitthvað sem á að heyra undir landbúnaðarráðuneyti sem dæmi, er þetta vísindastofnun, er þetta einhvers konar menntastofnun? Rannsóknir, ekki satt? Hvar eiga slíkar stofnanir heilt yfir heima í stjórnkerfinu að mati hv. þingmanns?
Sama er væntanlega með efnahagsmálin og ríkisfjármálin. Er að mati hv. þingmanns algjörlega útilokað, ófær leið að öllu leyti, að þau mál geti verið í einu og sama ráðuneytinu? Er enginn flötur á því að það geti gerst þannig? Sér þingmaðurinn eitthvað jákvætt við þá tillögu sem hér er verið að ræða um í ljósi þess að stjórnsýslan hér var dæmd meira og minna ónýt og reyndist í það minnsta meingölluð, ef ekki gjörsamlega handónýt, á sínum tíma? Sér hv. þingmaður eitthvað í þessari tillögu sem væri líklegt til að gera stjórnsýsluna betri en hún hefur verið?