breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Skógræktin og Hafrannsóknastofnun gætu með rökum heyrt undir menntamálaráðuneytið þar sem um er að ræða rannsóknir að mörgu leyti. Það væru rök fyrir því að hafa þær undir menntamálaráðuneytinu. Ég tel hins vegar að þar sem þær tvær stofnanir tengjast mjög vel ákveðnum atvinnuvegum, annars vegar landbúnaði og hins vegar sjávarútvegi, ættu stofnanirnar að heyra undir atvinnuvegaráðuneytið. En þetta er nokkuð sem mér finnst þurfa umræðu um, þetta er ekki í þessari þingsályktunartillögu, það er engin umræða um þetta. Það er órætt eða kannski eru menn búnir að taka ákvarðanir án þess að láta það koma fram. Þetta finnst mér að þurfi að ræða og þá mætti gjarnan taka fleiri inn í það, t.d. stjórnarandstöðuna líka, vegna þess að þetta er ekki í sjálfu sér stefnumörkun um pólitík heldur spurning um hversu lipra stjórnsýslu við viljum hafa.
Það voru veilur í stjórnsýslunni og eftir hrun er mikil óreiða í þjóðfélaginu. Það eru mörg óleyst vandamál, fyrirtækin eru í uppnámi, heimilin sömuleiðis, það er heilmikil óreiða. Og það getur verið að þetta sé ekki rétti tíminn til að auka á óreiðuna með því að breyta stórum ráðuneytum á sama tíma. Stöðugleiki í stjórnsýslunni er góður og óreiða í stjórnsýslunni er ekki góð þegar það er óreiða hjá heimilunum og fyrirtækjunum. Rétti tíminn til að breyta þessu er kannski ekki akkúrat eftir hrun.
Hins vegar kom í ljós í hruninu að ýmsu þarf að breyta og mér fannst efnahags- og viðskiptaráðuneytið vera góð lausn. Nú á hverfa frá því aftur þannig að mér finnst menn vera að búa til óreiðu.