140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[18:31]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hjó eftir því í ræðu hv. þm. Jóns Bjarnasonar að iðulega væri talað um að í tillögunum sem hér er verið að ræða felist það að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið verði lagt niður, þ.e. að stjórnsýsla sjávarútvegs og landbúnaðar verði aflögð. Í því ljósi langar mig að spyrja hv. þingmann hvort ráðuneytið hafi verið lagt niður 2007, landbúnaðarráðuneyti eða sjávarútvegsráðuneyti, þegar þau voru sameinuð í eitt ráðuneyti á sínum tíma. Hvort þeirra var lagt niður að mati hv. þingmanns fyrst hann telur að tillagan eins og hún lítur út í dag sé aðför að þessum greinum, þ.e. sjávarútvegi og landbúnaði, og að verið sé að leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og stjórnsýsluna þar í kring? Ég hef ekki orðið var við að hvor málaflokkurinn um sig, þ.e. sjávarútvegsmálin eða landbúnaðarmálin, hafi beðið sérstaklega mikinn hnekki af því að þessi ráðuneyti voru sameinuð í eitt árið 2007. Ég spyr því hv. þingmann sömuleiðis hvort ganga eigi til baka með þá sameiningu að einhverju leyti, hvort það hafi verið röng ákvörðun. Einnig spyr ég hv. þingmann varðandi aðrar breytingar sem gerðar hafa verið samkvæmt þeim stjórnarsáttmála sem ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna starfar eftir og þegar hefur verið ráðist í, ég nefni innanríkisráðuneyti og velferðarráðuneyti sem dæmi um það. Var það rangt? Hefði ekki átt að ráðast í þessar sameiningar? Telur hv. þingmaður að frekar eigi að ráðast í að skipta þeim upp aftur?