breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Mér fyndist sanngjarnt að gagnspyrja hv. þingmann sem lokið hefur andsvari sínu en ég get upplýst hann um að nánast öll félög innan sjávarútvegs og landbúnaðar hafa lýst andstöðu sinni við þessar áformuðu breytingar. Eiga þau ekkert að hafa neitt um það að segja?
Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að það er mat mitt og fleiri að tilfærsla á landbúnaðarháskólunum milli ráðuneyta, frá landbúnaðarráðuneytinu til menntamálaráðuneytisins, hafi ekki verið þeim til styrktar, það er alveg ljóst. Þeir hafa átt í mun meiri erfiðleikum fjárhagslega eftir sameininguna en fyrir hana, sérstaklega af því að ekki hefur verið staðið við þau loforð sem þá voru gefin.
Ég tel að landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið eigi að halda þeirri stjórnsýslulegu stöðu sem það hefur núna, ekki síst á þeirri fáránlegu (Forseti hringir.) vegferð sem við erum á núna í samningunum við Evrópusambandið. Það sem skiptir miklu máli að (Forseti hringir.) staða þessara atvinnugreina sé sterk til að hægt sé að stöðva þá vegferð.
(Forseti (ÞBack): Forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutíma.)