140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[22:07]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa ræðu og líka fyrir fyrri ræðu hans hér í dag.

Hv. þingmaður hefur farið yfir það að lítill sparnaður er af þessum breytingum á Stjórnarráðinu, þ.e. fækkun ráðuneyta, en með þeim erum við í raun að auka völd embættismannakerfisins á kostnað kjörinna fulltrúa. Það er þvert á það sem rannsóknarnefnd Alþingis og þingmannanefndin komust að á sínum tíma, þ.e. að við ættum einmitt að auka völd kjörinna fulltrúa. Ragna Árnadóttir, fyrrverandi ráðherra í þessari ríkisstjórn og ráðuneytisstjóri, fór vel yfir þetta. Hún þekkti þetta mál frá öllum hliðum. Hún sagði einfaldlega að mikil fækkun ráðuneyta, og um leið stækkun þeirra, drægi úr völdum kjörinna fulltrúa og mundi auka völd embættismannakerfisins. Þar var manneskja sem hafði til þess að gera enga pólitíska hagsmuni, var ráðherra sem stóð utan hins pólitíska heims ef svo má segja. Það liggur því ljóst fyrir að það virðist vera stefna ríkisstjórnarinnar að auka völd embættismanna.

Þá langar mig að spyrja af því að ég hef verið að reyna að velta því fyrir mér, bæði við þessa umræðu og fyrri umræður: Hvað er það sem býr að baki hjá ríkisstjórninni og forustumönnum ríkisstjórnarinnar að búa svo um hnútana ítrekað að leggja fram mál sem beinlínis eru ætluð til að (Forseti hringir.) auka á völd embættismannakerfisins á kostnað kjörinna fulltrúa? Hvert erum við að stefna og hvað býr þarna að baki? Ég get engan veginn áttað mig á því og hæstv. ráðherrar eða þingmenn stjórnarliðsins hafa ekki getað svarað þessu hér í dag.