störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég kem upp til að ræða aðeins ESB-málin og sérstaklega þó ummæli sem féllu hjá formanni utanríkismálanefndar, hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni. Hann sagði í ræðustól fyrir stundu að næðust samningar við ESB tæki Alþingi þá ákvörðun að setja samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Um 70% þjóðarinnar eru á móti aðild að Evrópusambandinu en því miður er annar meiri hluti í þinginu á góðum degi en er hjá þjóðinni (Gripið fram í.) þannig að hér var því beinlínis lýst yfir að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ætlaði að taka ákvörðun um það sjálf í þinginu hvort málið ætti að halda áfram. Við skulum átta okkur á því að sá meiri hluti sem náðist fyrir aðildarumsókninni var knúinn fram með nokkru ofbeldi á sínum tíma. Þess óska ég að sá meiri hluti haldi ekki en þetta eru stóralvarleg tíðindi ef þetta er hugsun ríkisstjórnarflokkanna. Ég hef spáð leiftursókn í þessu aðildarferli því að það er lífsnauðsynlegt fyrir ríkisstjórnina að samningur liggi fyrir fyrir kosningar ef þessir flokkar ætla að ná einhverjum árangri. En Samfylkingin fer líklega áfram með þetta mál og því verður niðurstaða í málinu bráðlega að vera skýr. Leynimakkið í kringum þessa umsókn og hæstv. utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson undanfarna daga er orðið með slíkum ólíkindum að hann veit ekki sjálfur hvort hann er að fara eða koma frá Brussel.
Virðulegi forseti. Ég tel að það sé kominn tími til að hæstv. utanríkisráðherra endurskoði stöðu sína í þinginu og ég held að það sé kominn tími til að hann stingi hausnum í helgan stein. [Hlátur í þingsal.]