breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Hæstv. forseti. Ég tel rétt að láta hér við sitja um útskýringar á hvað umhverfisráðuneytið eigi að gera. Þá langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra að því sem kemur fram á bls. 2 varðandi það að þetta mál sé í tengslum við lærdóma sem draga megi af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þess efnis að þörf sé á að efla ráðuneytin og að ein leið að því marki sé að stækka þau með sameiningu.
Lítur hæstv. forsætisráðherra svo á að með þessari breytingu á Stjórnarráðinu, með sameiningu ráðuneyta, sé að fullu verið að koma til móts við þær athugasemdir og þann lærdóm sem rannsóknarnefndin er að reyna að fá okkur öll til að draga af skýrslu sinni? Eða á ekki að skilja niðurstöður rannsóknarskýrslunnar þannig að verið sé að tala um að efla ráðuneytin að því marki að þau verði faglega sterkari, stærri og þannig betur í stakk búin til að takast á við sín verkefni?