140. löggjafarþing — 85. fundur,  18. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[17:46]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):

Ég held að það sé alveg ljóst, virðulegi forseti, að ráðuneytin hafa sum hver verið allt of lítil og veikbyggð, mörg ráðuneyti og það var það sem kom fram í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Verið er að mæta þessum sjónarmiðum með því að gera þau faglega sterkari, styrkja þau og gera þau öflugri til að takast á við sín verkefni.

Það er gegnumgangandi í þessu og það er markmiðið með breytingunni sem við erum að fara í. Tökum sem dæmi sameiningu atvinnuvegaráðuneytanna, það er nýsköpunarþáttur í öllum ráðuneytum og stoðkerfið í nýsköpunarmálum nýtist miklu betur ef þetta er allt í einu ráðuneyti. Það sama gildir með efnahagsstjórnina. Við erum að samhæfa hana miklu betur en var þegar við bjuggum við veikt efnahags- og viðskiptaráðuneyti og dreifða efnahagsstjórn í þremur ráðuneytum. Það er því fyrst og fremst verið að byggja þessi ráðuneyti upp til að takast á við verkefni. (Forseti hringir.) Við erum líka að tala um samhæfingu í embættismannakerfinu og að gera það sterkara.