140. löggjafarþing — 85. fundur,  18. apr. 2012.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

727. mál
[18:10]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hún meti það svo að sú faglega vinna sem hafi farið fram hafi ekki tekið tillit til þessara varúðarsjónarmiða og þess vegna hafi stjórnmálin tekið yfir og lagt á það sína stjórnmálalegu mælistiku og það hafi yfirskyggt hina faglegu vinnu sem hafi verið unnin áður, og hvort þetta geti ekki virkilega leitt til þess að menn geti farið öfuga leið ef þessir pólitísku vindar breytast.