140. löggjafarþing — 85. fundur,  18. apr. 2012.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

727. mál
[18:23]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú veit ég ekki alveg hvort ég átta mig á því sem hv. þingmaður er að spyrja um. Ég var ekki starfandi iðnaðarráðherra þegar þessi svokallaða skoðanakönnun fór fram, en hún hafði væntanlega áhrif á drögin að þingsályktunartillögunni sem send var út til umsagnar, trúi ég. Ég get samt ekki fullyrt um það hvernig hún var unnin, en röðunin var unnin af fagfólkinu, formönnum faghópanna og síðan formanni verkefnisstjórnarinnar.

Áhrifin á þá niðurstöðu sem við fjöllum um hér get ég fullyrt að eru engin. Áhrifin á þá tillögu sem við erum að skoða hér stafa aðeins frá umsögnunum sem komu fram eftir lögbundna umsagnaferlið.