áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Það er rétt að virkjunarkostir í neðri hluta Þjórsár hafa verið umdeildir. Þeir hafa verið skoðaðar af einni góðri stofnun okkar Íslendinga, það er enn í rannsókn.
Því sem þarf að svara er hvort virkjanirnar muni hafa varanleg neikvæð áhrif á seiði í ánni. Þó að ég sé sannfærð um að þeir fagmenn sem hafa gert þær rannsóknir sem nú þegar hafa verið gerðar séu góðir, eru samt sem áður enn uppi deilur um þetta og aðrir fagmenn sem segja að það þurfi að gera betur. Ókosturinn við stöðuna eins og hún er nú er sá að aðeins einn aðili hefur rannsakað ána. Til að skera úr um þessa hluti þarf að minnsta kosti að fá einhvern til að rýna þær (Forseti hringir.) niðurstöður og þær rannsóknir sem hafa verið gerðar. Við þurfum að ná sátt og til þess þurfum við að vera viss um að við séum ekki (Forseti hringir.) að valda tjóni með virkjunum, varanlegu tjóni.