fjölgun framhaldsskóla.
Frú forseti. Ég beindi skriflegri fyrirspurn til hæstv. menntamálaráðherra um fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum ráðuneytisins. Ég fékk svar í vikunni og það var ansi greinargott og var mikilvægt að fá yfirlit um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á vegum ráðuneytisins á næstu fimm árum.
Ég vil hins vegar vekja athygli á því, ekki síst í ljósi nýjustu talna frá Hagstofunni þar sem enn kemur fram að umsóknum í framhaldsskóla hefur fjölgað, að það liggur ljóst fyrir samkvæmt skýrslu sem gerð var á vegum ráðuneytisins að fleiri framhaldsskóla þarf til að anna eftirspurn eftir skólavist í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu, bæði í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi. Í skýrslunni kom fram að koma þurfi á fót framhaldsskóla í austurhluta Kópavogs eða í norðurhluta Reykjavíkur sem taki þá á móti nemendum úr Norðlingaholti og Kópavogi og þar í kring.
Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvernig stendur á því að þess er ekki getið í svari hæstv. ráðherra? Er fyrirhugað að setja á laggirnar nýjan framhaldsskóla til að anna þeirri eftirspurn sem er eftir skólavist í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu? Eða er það kannski hitt, sem ég vonast til að að heyra frá hæstv. ráðherra að sé raunin; eru kannski frekari áætlanir um að fjölga þeim sem klára stúdentspróf á skemmri tíma en núna? Annaðhvort verður það að vera. Annaðhvort verður að fjölga framhaldsskólum til að anna þeirri eftirspurn sem nú er og sem við eigum að fagna, eða hitt að menn breyti markvisst um stefnu í þessum málum, sem ég mundi fagna, og stytti tímann til stúdentsprófs, því að ef menn huga ekki að þessum málum stöndum við frammi fyrir gríðarlegum vanda á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum.