140. löggjafarþing — 86. fundur,  20. apr. 2012.

stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum, munnleg skýrsla ráðherra norrænna samstarfsmála.

[11:37]
Horfa

velferðarráðherra (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Í dag ræðum við sameiginlega hagsmuni Norðurlandabúa varðandi gagnkvæm réttindi og skyldur íbúanna og þær hindranir og takmarkanir sem oft virðast koma upp í samskiptum þessara landa.

Við höfum ávallt treyst á að Íslendingar sem flytja til annarra norrænna ríkja geti notið þar fullra réttinda á við heimamenn, gengið inn í félags- og almannatryggingakerfi, sótt vinnu eða stundað nám og fengið greiðslur í samræmi við reglur viðkomandi lands. Víst er að við njótum víðtæks réttar og almennt taka Norðurlandaþjóðirnar afar vel á móti íbúum hver annarrar. Engu að síður leiðir mismunandi lagaumhverfi landanna til margra árekstra og álitamála sem valda einstaklingum erfiðleikum við flutning milli landa. Það er það sem við tölum hér um sem landamærahindranir eða stjórnsýsluhindranir.

Tilefni þessarar umræðu er meðal annars að Norðurlandaráð hefur lagt ríka áherslu á að koma í veg fyrir að slíkar hindranir í lögum og stjórnkerfum Norðurlandanna geti takmarkað að einhverju leyti möguleika einstaklinga eða gert erfiðara eða jafnvel ómögulegt fyrir þá að fara eða flytja á milli landa sem og að nema eða starfa í öðru norrænu ríki en því sem þeir búa í. Mikill vilji er til þess að hægt sé að flytja á milli ríkja á Norðurlöndum, sækja þar vinnu eða stunda nám, án þess að tapa réttindum við flutninginn. Norðurlandaráð hefur jafnan lagt áherslu á umræðu um þessi mál innan Norðurlandanna og er umræðunni hér í dag ætlað vekja athygli á þessum málum, en sams konar umræða fer þessa dagana fram á þjóðþingum hinna norrænu ríkja.

Það er sameiginlegt verkefni okkar stjórnmálamanna, stjórnsýslunnar, Norðurlandaráðs og hagsmunasamtaka alls staðar á Norðurlöndum að taka höndum saman og leita lausna og ryðja úr vegi þeim hindrunum sem lög, stjórnkerfi og túlkun eða framkvæmd einstakra réttinda setja einstaklingum.

Á stórri ráðstefnu í Noregi í gær var kynnt nýútkomin skýrsla um hugsanlegar hindranir innan stjórnkerfis Norðurlandanna á þessu sviði, skýrsla sem þverfagleg sérfræðinganefnd vann. Skýrslan hefur í lauslegri þýðingu hlotið nafnið: „Landamæra- eða stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum, samantekt og lýsing á landamærahindrunum og tillögur að lausnum“. Nefnd þessi hefur undanfarna mánuði starfað í umboði frá norrænu embættismannanefndinni um félagsmál og vinnumál og var henni falið að fara yfir ýmis tilvik þar sem upp hafa komið vandamál við framangreindar aðstæður og greina hvort um eiginlegar hindranir innan stjórnkerfa Norðurlandanna hafi verið að ræða og ef svo hefur verið að koma með tillögur um hvernig unnt sé að koma í veg fyrir slíkar hindranir til frambúðar.

Í dag er staðan á Norðurlöndum sú lagalega séð að jafnræði ríkir meðal norrænu ríkisborgaranna hvað varðar greiðslur úr almannatryggingakerfum ríkjanna. Með öðrum orðum eru allir norrænir ríkisborgarar jafnir þegar kemur að tryggingakerfum ríkjanna og þurfa þar með að uppfylla sömu skilyrði til að fá greiddar bætur burt séð frá hvaða norræna ríki viðkomandi einstaklingur kemur. Í þessu sambandi vil ég þó árétta að fyrirkomulag tryggingakerfa er á ábyrgð hvers ríkis og undir ákvörðunarvaldi þess. Löggjöf Norðurlandaþjóðanna er því ekki sú sama og skilyrði fyrir greiðslu bóta ekki alltaf þau sömu ef reglur tveggja eða fleiri norrænna ríkja eru bornar saman. Kannski er það þar sem vandamálið kemur upp, þ.e. í mismuninum á lagalegu umhverfi.

Að mínu mati má ætla að mismunandi reglur hvað varðar bótarétt einstaklinga muni ávallt verða til staðar á Norðurlöndum á meðan löggjöf ríkjanna verður ekki sameinuð í eina löggjöf eða samræmd að efni til í meira mæli en nú er. Ég geri mér því fulla grein fyrir því að við flutning á milli norrænu ríkjanna kunni að koma upp vandamál, m.a. í tengslum við greiðslu bóta þar sem þær bætur sem einstaklingar geta átt rétt á fara eftir löggjöf í hverju ríki fyrir sig og geta því verið mismunandi milli ríkja eins og áður sagði. Þetta getur auðveldlega leitt til þess að einstaklingur sem flytur frá einu norrænu ríki til annars og fellur þar með undir löggjöf þess ríkis sem flutt er til getur átt annan bótarétt í því ríki sem flutt er til sem er eftir atvikum betri eða verri en í ríkinu þar sem hann bjó áður.

Í þessu sambandi vil ég geta þess að oftast eru það mismunandi reglur á Norðurlöndum sem einstaklingarnir reka sig á flytjist þeir milli landa. Deila má um hvort hér sé um eiginlega hindrun að ræða eða landamærahindranir fyrir viðkomandi einstakling, en vissulega geta þessar mismunandi reglur ríkjanna haft áhrif við val á búsetulandi eða vinnulandi. Á meðan löggjöf ríkjanna brýtur ekki gegn þeim samningum sem Norðurlandaþjóðirnar hafa gert sín á milli og þeim skuldbindingum sem ríkin hafa tekið á sig með aðild að samningum um Evrópska efnahagssvæðið og samningum um Evrópusambandið verður að mínu mati að ætla að ekki sé um eiginlegar hindranir að ræða, en um það má auðvitað deila. Það getur hins vegar verið flókið jafnvel fyrir bestu sérfræðinga að leysa mál þar sem taka þarf mið af löggjöf tveggja eða fleiri landa, flóknu fjölskyldumynstri og mismunandi búsetu fjölskyldumeðlima. Engan þarf að undra að vafi eða vandamál kunni að koma upp við þær aðstæður.

Bent hefur verið á fjölmörg dæmi þar sem ósamræmi í löggjöf landanna eða í túlkun laganna hefur valdið erfiðleikum fyrir t.d. öryrkja sem flutt hafa til Íslands eftir langa búsetu og störf annars staðar á Norðurlöndum og fá ekki greiddan lífeyri frá þeim löndum, a.m.k. ekki strax, og verða að lifa við skertan lífeyri á Íslandi. Þá þvælist mismunandi örorkumat og reglur um endurhæfingu fyrir íslenskum öryrkjum þegar þeir búa erlendis og ætla að sækja rétt sinn erlendis eða þegar heim er komið. Öryrkjabandalag Íslands hefur bent á þessa annmarka og reynt að sækja rétt fyrir félagsmenn sína, oft með litlum árangri.

Sömuleiðis hefur norræna verkalýðssambandið, NFS, og samband norrænu félaganna, FNF, bent á stjórnsýsluhindranir eða landamærahindranir varðandi atvinnuleysistryggingar og aftur endurhæfingu og starfsþjálfun á vinnumarkaði.

Dæmi um hindranir sem eru til umræðu og skoðunar eru t.d. takmörkun á rétti feðra til að taka fæðingarorlof ef faðirinn vinnur í Noregi en móðirin og barnið búa á Íslandi.

Við Íslendingar erum enn með þá hindrun sem snýr í hina áttina að erlendir aðilar, þar með talið Norðurlandabúar og raunar einnig Íslendingar sem búið hafa lengi erlendis, þurfa sex mánaða biðtíma til að komast inn í íslenska sjúkratryggingakerfið. Ekkert hinna norrænu ríkjanna er með sambærilegt ákvæði. Þetta atriði er þó ekki nefnt í áðurnefndri skýrslu en vert að benda á það því að þar setjum við Íslendingar harðari kröfur en hinar Norðurlandaþjóðirnar.

Ég tel þó að með auknu samstarfi, betri fræðslu og upplýsingastreymi til almennings og milli stofnana í hverju ríki fyrir sig og á milli ríkjanna sé unnt að leysa úr mörgum af þeim vandamálum og vafaatriðum sem upp kunna að koma.

Sem betur fer heyra þau vafamál sem upp hafa komið hér á landi varðandi rétt annarra Norðurlandabúa hér frekar til undantekninga en hitt og hefur stofnunum okkar í samvinnu við viðeigandi stofnanir annars staðar á Norðurlöndum tekist í flestum tilvikum að leysa úr þeim málum.

Meðal annars í því skyni að bregðast við hugsanlegum vandamálum auk þess að tryggja eins og kostur er félagslegt öryggi ríkisborgara á Norðurlöndunum sem flytjast á milli landanna, svo sem vegna náms eða atvinnu, hafa ríkin gert með sér samninga m.a. á sviði almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar. Milli norrænu ríkjanna erum við með tví- eða fjölþjóðasamninga þar sem leitast er við að leysa þau vandamál sem upp koma og mæta einstaklingum við flutning eða för milli Norðurlandanna og stafa af því að lög og reglur í ríkjunum eru ólík. Ég lít því ekki svo á að þessir samningar norrænu ríkjanna séu til trafala eða auki á vandamál heldur tel þvert á móti að þeir séu hluti af lausn þeirra vandamála sem upp kunna að koma í ljósi ólíkra reglna innan ríkjanna og því beri að efla þá og styrkja eins og kostur er.

Í þessu sambandi vil ég geta þess að almannatryggingareglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og Norðurlandasamningurinn um almannatryggingar eru stærstu milliríkjasamningar á sviði almannatrygginga sem Ísland hefur nokkurn tímann gert. Þessir samningar hafa m.a. í för með sér að sömu reglur gilda hvort sem tryggður einstaklingur flytur eða fer frá Íslandi til vinnu í Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi o.s.frv. Með öðrum orðum er samningnum ætlað að samhæfa þær reglur sem gilda við flutning fólks milli norrænu ríkjanna og hvernig með skuli fara komi upp vandamál hjá þeim einstaklingum sem það gera.

Ég tel þetta vera til mikilla hagsbóta fyrir þá sem ákveða að vinna eða búa á Norðurlöndunum, eða fara á milli landa atvinnu sinnar vegna, en á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar í tengslum við för fólks á milli landa, m.a. í atvinnuskyni.

Norðurlandasamstarfið á sviði almannatrygginga og félags- og heilbrigðismála hvílir á gömlum grunni. Að mínu mati hefur þetta samstarf reynst okkur Íslendingum vel og orðið til þess að auðvelda okkur samskipti við hinar Norðurlandaþjóðirnar. Ég tel enn fremur að það hafi átt mikinn þátt í að gera ríkisborgurum þessara ríkja auðveldara um vik, hvort sem um er að ræða ferðalög eða flutning á milli landa.

Sú skýrsla sem nú liggur fyrir og ég minntist á í upphafi er að mínu mati mikilvæg viðbót við samstarf Norðurlandaþjóðanna og ætti að geta orðið til þess að auðvelda markvissar aðgerðir á grundvelli samninga þessara ríkja í því skyni að koma í veg fyrir hindranir þegar fólk flytur á milli landanna. Skýrslan er þó einungis fyrsta skref þar sem reynt hefur verið með faglegum hætti að kortleggja þau vandamál sem upp hafa komið við slíka flutninga, auk þess sem þar er að finna sameiginlegar tillögur að lausnum í tilteknum tilvikum frá sérfræðingum frá öllum norrænu ríkjunum.

Að lokum hvet ég ykkur öll að kynna ykkur efni skýrslunnar sem best þar sem um mjög mikilvægt mál er að ræða sem snertir okkur flest ef ekki öll og fjölskyldur okkar á einhvern hátt. Ég hvet stjórnmálamenn að nýju og ráðuneyti, stofnanir og hagsmunasamtök að leggja sitt af mörkum til að ryðja úr vegi stjórnsýslu- eða landamærahindrunum á Norðurlöndum og styrkja stöðu Norðurlandanna sem heildar í alþjóðlegu samstarfi. Megi umræðan í dag vera gagnleg og upplýsandi og vísa okkur fram á veginn til enn bætts samstarfs Norðurlanda okkur öllum til heilla.