stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum, munnleg skýrsla ráðherra norrænna samstarfsmála.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir að þessari umræðu sé hleypt að á dagskrá þingsins og taka undir með hv. þm. Helga Hjörvar þar sem hann bendir á að það er ekki sjálfsagt að hægt sé að skipuleggja umræðu um eitt og sama málið á öllum þjóðþingum Norðurlandanna eins og okkur hefur tekist í þessu máli. Hér er sett sérstaklega á dagskrá tiltekið viðfangsefni sem mjög hefur verið til umræðu á vettvangi Norðurlandaráðs undanfarin ár.
Mér finnst ágætt að setja þá umræðu sem hér fer fram og í þjóðþingum hinna Norðurlandanna í samhengi við umræðuna um það hversu miklum árangri við erum að ná í starfi Norðurlandaráðs. Í því sambandi er nærtækt að vísa til skýrslu sem hefur verið þar til umræðu nýverið um raunverulegar aðgerðir einstakra ríkisstjórna á grundvelli þess sem ákveðið hefur verið hjá þinginu og í Norðurlandaráði. Það er svo sem efni í alveg sérstaka umræðu og menn geta horft á það hver með sínum hætti hvort sá hlutfallslega litli árangur sem við mældum fyrir stuttu er engu að síður býsna mikill þegar allt er tekið með í reikninginn. Ég held að það megi reyndar færa fyrir því rök.
Það sem við höfum verið að gera, og við vorum hér með fund á Alþingi fyrir nokkrum vikum, er að auka aðkomu þjóðþinganna og þessir fundir sem haldnir eru á öllum Norðurlöndunum eru til vitnis um það að við erum aðeins að breyta aðferðafræðinni til þess væntanlega að tryggja enn meiri árangur. Ég held að það sé vel. Ég tel mjög skynsamlegt að efna til sérstakra funda á borð við þann sem við höfum hér í dag og á borð við þann sem fór fram hér á Alþingi í fyrsta sinn fyrir nokkrum vikum. Þetta fyrirkomulag er mjög til bóta.
Um það efni sem hér er sérstaklega til umræðu vil ég láta þess getið að ég held að það hafi verið mjög skynsamleg ráðstöfun hjá norrænu embættismannanefndinni á sviði félagsmála, heilbrigðismála og vinnumarkaðar að taka saman þá skýrslu sem við eigum nú von á innan skamms en liggur þó fyrir í drögum. Mér skilst að umrædd skýrsla verði þýdd yfir á íslensku, en þar er sem sagt búið að taka saman með skipulegum hætti allar helstu ábendingar á viðkomandi sviðum um landamærahindranir sem ríkin hafa verið að glíma við.
Af lestri skýrslunnar, af helstu niðurstöðum hennar, má sjá að ýmislegt hefur verið í umræðunni sem eru svo sannarlega landamærahindranir sem taka ber á — og það er nú einn kostur þeirrar skýrslu sem er væntanleg að hún bendir á leiðir til lausna. Síðan eru líka ávallt atriði sem uppfylla ekki skilyrði þess að teljast vera raunverulegar landamærahindranir. Það held ég að sé líka mikilvægt fyrir okkur að hafa í huga að ekki er sérhver vandi þeirra sem ætla að flytja á milli Norðurlandanna, sækja þar nám eða stunda einhver störf, þess eðlis að við getum fellt hann undir hugtakaskilgreininguna landamærahindrun. Þannig er það ekki svo að sérhver réttindi sem við höfum tryggt íbúum okkar eigi að flytjast með viðkomandi þegar hann ákveður að flytja eða starfa á einhverju hinna Norðurlandanna. Við skulum vera þess meðvituð í þessari umræðu að það er ekki það sem við erum endilega að tala um, enda mundi það í eðli sínu þýða að við værum gengin inn í miklu dýpra og þýðingarmeira norrænt samstarf en ég tel að við leggjum almennt til grundvallar í þessari umræðu.
Með þessu er ég ekki að gera lítið úr efninu, heldur þvert á móti að reyna að skerpa á þeim þáttum sem eru raunverulegar landamærahindranir. Í þeirri skýrslu sem við eigum von á finnst mér að menn hafi með skipulegum hætti einangrað þau mál sem við eigum að horfa til og við höfum raunhæfa möguleika á að leysa. Mér finnst líka að hæstv. menntamálaráðherra hafi gert því mjög góð skil hvar sóknarfæri eru fyrir okkur sameiginlega. Nefnd eru ýmis svið eins og tónlist. Á síðasta fundi sem ég sótti hjá Norðurlandaráði var til dæmis talað um samþættingu aðgerða á sviði hönnunar. Við skulum gæta að því að það séu ekki einhverjar tæknilegar hindranir sem koma í veg fyrir að við sem þjóðríki og Norðurlöndin sameiginlega getum sótt fram í samkeppni við önnur markaðssvæði. Af þeirri ástæðu þurfum við að hafa auga á sóknarfærunum um leið og við ræðum mál sem tengjast til dæmis velferðarkerfinu, heilbrigðiskerfinu, námsmönnum og öðrum slíkum.
Hér hefur verið komið stuttlega inn á samþættingu vegna Evrópusambandsgerða. Ég get tekið undir það með hv. þm. Helga Hjörvar að það er ekki skynsamlegt að vera að búa til viðbótarhindranir með því að vera með svo mjög ólíka innleiðingu þeirra gerða að það skapi ný vandamál. Það þarf að vera einhver lágmarkssamræming á innleiðingu slíkra gerða, þó þannig að verið sé að spila innan þess svigrúms sem gerðirnar leyfa fyrir hvert þjóðríki við innleiðinguna.
Nokkuð hefur verið rætt um það í viðskiptanefndinni þar sem ég á sæti í Norðurlandaráði og í flokkahópnum reyndar líka, hvort skynsamlegt væri að nota Norðurlandaráð sem vettvang til að samþætta sjónarmið á sviði Evrópumála með almennari hætti en átt hefur við fram til þessa. Ég tel að því geti fylgt þó nokkuð mikið flækjustig, ekki síst vegna þess að það eru kannski ekki endilega sameiginlegir hagsmunir hjá öllum þjóðríkjunum í öllum málaflokkum. Ég nefni landbúnaðinn sem eitt dæmi. Þarna var sem sagt hugmyndin sú að Norðurlandaþjóðirnar mundu nota Norðurlandaráð sem einhvers konar vettvang til að ræða löggjöf sem væntanleg væri frá Evrópusambandinu og hvernig bregðast mætti við henni eða koma á framfæri sjónarmiðum hjá Evrópusambandinu. Engu að síður er það við innleiðinguna almennt, sem hv. þm. Helgi Hjörvar gerði hér að umtalsefni, sem ég held að við þurfum að gæta okkar.
Niðurstaða mín varðandi samstarfið að öðru leyti er sú að ég tel að Norðurlandaráð sé ekki heppilegur vettvangur til að fara að samþætta almennt sjónarmið varðandi stefnumál eða nýja löggjöf frá Evrópusambandinu. Ég tel að við ættum að einbeita okkur að því sem snertir Norðurlöndin með beinum hætti og aðskilja Evrópusambandsmálin í þessu stóra víðtæka samhengi.
Ég ætla ekki að fara inn á einstök atriði sem til dæmis hafa verið tiltekin hér í umræðunni eða koma fram í þessum drögum að skýrslu sem við eigum í vændum, heldur láta nægja að fagna þeim vinnubrögðum sem birtast í skýrsludrögunum og vil líka nota þetta tækifæri til að fagna því að við tökum umræðu á þjóðþingunum öllum á sama tíma. Ég tel að við eigum að gera meira af því sem við höfum séð núna í tvígang á þessu ári, vera öll saman fulltrúar frá Norðurlandaþjóðunum á einum stað til að taka með svona snörpum og skilvirkum hætti umræðu um einstök mál. Hér er sannarlega tækifæri til þess að veita ríkisstjórnum allra þjóðríkja aðhald. Þegar við höfum fengið þessa skýrslu þýdda yfir á íslensku held ég að við höfum einnig rutt landamærahindruninni úr vegi til að skapa með því grundvöll fyrir almenna umræðu um þær hindranir sem hér hafa verið skjalfestar og skapa grundvöll fyrir því að úti í atvinnulífinu, hjá stéttarfélögum og hvarvetna hjá hagsmunaaðilum séu upplýsingar tiltækar til að gera sér grein fyrir þeim hindrunum sem eru til staðar fyrir fram áður en menn rekast á þær. Það er nefnilega svo, eins og hér hefur verið bent á, að þegar allt kemur til alls er það fólk sem verður fyrir hindrununum.