áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Þetta eru einkar áhugaverðir punktar sem komu hér fram. Ég hef verið mjög hugsi yfir því, eftir að ég tók sæti á Alþingi, hvernig þeim einstaklingum sem koma að vinnu við að hjálpa þeim stjórnvöldum sem nú sitja, t.d. fræðimönnum sem fengnir eru til að skrifa frumvörp, líður raunverulega inn við beinið. Svo þegar frumvörpin hafa farið í gegnum hakkavél ríkisstjórnarinnar kemur eitthvað út úr þeim frumvarpsdrögum sem höfundarnir hafa jafnvel aldrei séð og kannast ekki við, en samt eru þeir bornir fyrir viðkomandi frumvarpi.
Þetta er eitt af því sem ég hef verið mjög hugsi yfir og þingmaðurinn minntist líka á stofnanir ríkisins. Jú ætli forstöðumenn og starfsfólk stofnana ríkisins þurfi ekki að bíða í nokkra mánuði í viðbót þar til þessi ríkisstjórn fer frá, bíta á jaxlinn og láta sig hafa það, það rugl sem ríkisstjórnin fer fyrir og pólitísk hrossakaup hennar.
Ég spurði um nefndir sem hafa verið stofnaðar í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ég man ekki alveg hvað þær eru margar en þær skipta tugum. Það er líka eitt sem þessi ríkisstjórn hefur tamið sér, þessi nefndarúthýsing á lagasetningarvaldi Alþingis. Við eigum að leysa hér allt með því að setja málin í nefnd og búið er að stofna óteljandi nefndir með tilheyrandi kostnaði. En til hvers eru nefndirnar? Jú, líklega til þess að draga málin aðeins á langinn, til þess að gefa ríkisstjórninni aðeins meira svigrúm til að starfa vegna þess að það er svo mikil óeining innan hennar að hún kemur ekki nokkru máli í gegnum þingið. Það kristallast í þessari þingsályktunartillögu sem átti að byggjast á rammaáætlun sem fór í gegnum allt þetta faglega mat og allan þennan langa tíma hjá færustu sérfræðingum okkar.
Ég er mjög hugsi yfir orðum þingmannsins og því sem hann sagði, hvenær fær fólk hreinlega nóg af þessum vinnubrögðum? Og ég minni aftur á að nú væri gott að hafa lagastofnun Alþingis, svo ég minnist einu sinni enn á það, til að hægt sé að minnsta kosti að ræða hér mál (Forseti hringir.) sem standast stjórnarskrá og önnur lög.