áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu sem er mjög mikilvæg. Ég náði ekkert í máli mínu að koma inn á áhrifin á atvinnulífið og atvinnuuppbygginguna og þar með á efnahagslífið hér á landi.
Hér var sagt í andsvari hv. þm. Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur áðan við hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson að þær virkjanir sem engin umræða væri um hefðu ekki heldur komist af stað og það væri fjarstæða að halda því fram að það væri bara töf á rammaáætlun sem hefði orðið til þess að ekki væri hægt að hefjast handa við atvinnuuppbyggingu. Ég vil í þessu samhengi nefna að það er ekki bara að þetta plagg tefjist heldur hefur margoft verið rætt um og bankamenn, fjármálastofnanir og matsfyrirtæki hafa viðurkennt opinberlega og fyrirtæki sem eru að leita sér fjármögnunar að það er komið pólitískt óþægindaálag á Ísland. Af hverju er það? Vegna þess að ríkisstjórnin í landinu er andvíg — nú skulum við bara horfa á þennan geira — nýtingu orkunnar til uppbyggingar á orkufrekri atvinnustarfsemi. Það er alveg sama hver hún er. Fyrst var andstöðu bara beint gegn áliðnaðinum en núna sjáum við nýjasta dæmið, þ.e. gagnaversfyrirtæki sem átti að setja upp á Blönduósi er farið. Hver er skýringin? Jú, skýringin er sú að viðbrögð, m.a. frá ríkisstjórninni, varðandi skattamál og önnur atriði sem þurfti fyrirgreiðslu með voru með þeim hætti að þetta fyrirtæki sá sér þann kost vænstan að fara af landi brott og byggja upp annars staðar. Ég get ekki sett tölur, krónur og aura á þetta tjón, (Forseti hringir.) en tjónið er ekki síst fólgið í því að við erum að missa okkar unga, greinda og flotta fólk (Forseti hringir.) til útlanda og hættan er sú að það komi aldrei aftur.