áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Hv. þm. Pétur Blöndal talar eins og það sé ábyrgð Íslands og skylda að virkja nær öll þau vatnsföll sem kostur er. Ég veit að hv. þingmanni er umhugað um hagkvæmni, þjóðarhag, arðsemi o.s.frv. og langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sjái fyrir sér, ef við tökum bara mjög skýrt dæmi sem allir skilja, Gullfoss, að hann nýtist þjóðinni og samfélaginu betur á arðsemishátt með því að vera til staðar óbreyttur. Þá geng ég eingöngu út frá arðseminni. Er arðsamt að hafa hann óbreyttan út af ferðaþjónustunni, út af öllum þeim fjölda ferðamanna sem hingað kemur o.s.frv.? Þá er ég ekki að tala um öll þau andlegu verðmæti og allt annað sem því fylgir að hafa hann óbreyttan hjá okkur. Er hann sammála því að það að láta tiltekin svæði vera í friði, eins og stórbrotin vatnsföll, sé eða geti verið annars konar hagkvæm nýting til framtíðar? Eða álítur hann að við getum ákveðið hér og nú, okkar kynslóð með okkar þröngu sýn, að hagkvæmasta nýtingin sé alltaf sú að virkja? Er ekki til önnur hagkvæmari nýting sem við sjáum ekki fyrir langt fram í tímann?
Þegar Sigríður í Brattholti reyndi að verjast því að menn færu að vaða í Gullfoss og eyðileggja hann var hún ekki að hugsa um ferðaþjónustu seinni tíma, henni bara þótti vænt um hann og kunni að meta hann fyrir það sem hann var. En við getum ekki séð fyrir framtíðina og þar liggur að mínu mati okkar ábyrgð, að fara fram af varúð og varkárni og skilningi á okkar takmörkuðu sýn.
Mig langar að fá viðbrögð hv. þingmanns (Forseti hringir.) við þessum hugleiðingum.