áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Hæstv. forseti. Fyrst varðandi setu mína í verkefnisstjórninni. Ég hafði ekki tekið sæti á þingi þegar ég var skipuð í stjórnina og tók ekki sæti á þingi fyrr en 2009 en ég byrjaði að starfa í verkefnisstjórninni 2007.
Varðandi hvort ég hafi verið sátt við niðurstöðurnar átti ég þátt í því að búa til aðferðafræðina. Ég trúi á aðferðafræðina og út úr henni koma þessar niðurstöður. Ég verð einfaldlega að standa að baki þeim vegna þess að ég trúi á þessa aðferðafræði. Auðvitað er aðferðafræðin ekki fullkomin og að sjálfsögðu má bæta hana, en verkefnisstjórnin gerði eins vel og hún gat með þeim verkfærum sem hún hafði, þ.e. tíma, svigrúmi og fjármunum.
Auðvitað er ég ekki á móti því að málið sé síðan sent til þingsins og fellt inn í þingtæka tillögu, en ég vek athygli á því að þegar verkefnisstjórnin vann þetta mál í 2. áfanga frá árinu 2007 lágu lögin sem samþykkt voru 2011 auðvitað ekki fyrir og það var svolítið seint í ferlinu, sem er galli á ferlinu. En við getum ekkert annað gert en að læra af reynslunni í þeim efnum. Það voru ákveðnar skoðanir uppi um það í þinginu, eins og við þekkjum úr umræðunni, hvort verkefnisstjórnin sjálf ætti að raða í flokkana eða hvort ríkisstjórnarflokkarnir ættu að gera það, sem varð niðurstaðan.
Þá verður líka að minna á að í þeirri vinnu sem Alþingi vann í kjölfar setningar laganna frá 2011 var biðflokkurinn þrengdur mjög. Ég verð að segja að mörg okkar sem störfuðum innan verkefnisstjórnar höfðum ekki gert ráð fyrir því að biðflokkurinn yrði svona þröngur, en hann er þannig að inn í hann eiga bara að fara kostir þar sem rannsaka þarf betur. Það á ekki að vera hægt að setja þar kosti þar sem þingmönnum eða þeim sem koma að þeim ákvörðunum finnst óþægilegt að taka ákvörðun um strax, þetta á ekki að vera (Forseti hringir.) biðleikur til að fresta því að taka ákvörðun heldur þarf slíkt að vera rökstutt (Forseti hringir.) á faglegum forsendum.