áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Varðandi nýtingu á auðlindum þá starfaði ég um árabil við það sem farmaður að flytja út ál frá álverinu í Straumsvík til Evrópu. Þá voru öll aðföng og allur útflutningur, nema súrálið, flutt á íslenskum skipum með íslenskum áhöfnum. Það unnu held ég þrefalt fleiri í álverinu í Straumsvík þá en í dag. Vegna tækniframfara hefur þeim fækkað mjög mikið. Þetta er spurning um hvað eigi að búa til mörg störf með þessari orkunýtingu. Þær hugmyndir sem eru uppi um sæstreng eru bara einhvers konar sjálfsmorð fyrir íslenskt atvinnulíf, ef menn ætla sér ekki bara að virkja heldur að flytja líka orkuna út, fimmfalda orkuverð til heimila á Íslandi undir því yfirskini að þeir geti hugsanlega selt orku til annarra á hærra verði. Það er glapræði.
Ég er innilega sammála því að bæði umhverfis- og samgöngunefnd og atvinnuveganefnd eigi að fjalla um þetta mál í sameiningu og ég vona að það náist einhver lausn á því, því það verður einfaldlega að fara vel yfir málið.
Hvað varðar háspennulínur í jörð þá höfum við rætt það aðeins í umhverfis- og samgöngunefnd. Það sjónarmið að það kosti miklar skemmdir á landi að koma háspennulínum í jörð er vissulega rétt, ef menn ætla sér að fara með háspennulínur í jörð á sama stað og núverandi háspennulínur eru. En ég hef lagt áherslu á að menn geti í flestum tilvikum, og ekki með miklu meiri tilfærslum, einfaldlega lagt háspennulínur í jörð meðfram þjóðvegum landsins þannig að það sé helgunarsvæði meðfram þjóðvegum fyrir háspennulínur. Það kemur í veg fyrir að farið sé þvert yfir hálendi, hraun eða heiðar með uppgröft. Það er ekki endilega þörf á því. Mér finnst að við eigum að sjá sóma okkar í því að taka á okkur þann aukakostnað sem mundi fylgja. Ef það er tæknilega framkvæmanlegt að fara með línurnar í jörð þá eigum við að gera það með þessum hætti. Það væri frábær lausn og frábær skilaboð til umheimsins um áhuga Íslendinga á eigin landi.