140. löggjafarþing — 87. fundur,  24. apr. 2012.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

727. mál
[17:24]
Horfa

Róbert Marshall (Sf):

Virðulegur forseti. Mig langar til að blanda mér í þá umræðu sem hér fer fram um hina ágætu tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

Fyrir það fyrsta vil ég að fagna þeim áfanga að við séum farin að ræða með þessum hætti í þinginu heildstæða áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða en líka láta í ljós skoðun mína á einstökum virkjunarkostum eða nýtingarkostum sem hér eru til umfjöllunar og eins á formi þeirrar umræðu sem hér fer fram og þarf að fara fram um þetta efni. Það er hætt við, eins og orðaskipti hv. síðasta ræðumanns, Margrétar Tryggvadóttur, og hv. þm. Birgis Ármannssonar báru með sér, að menn fari að horfa á sáttina í þessu máli sem einhvers konar reikningsjöfnuð þar sem skipta þurfi nýtingarkostum sem skoðaðir hafa verið og landsvæðum jafnt á milli þeirra sem deila. Svo er ekki. Þetta er ekki spurning um að menn geti búið til eitthvert mengi af 60 eða 70 nýtingarkostum á landsvæðum og þeim þurfi síðan að skipta á milli þeirra sem teljast vera náttúruverndarsinnar og nýtingarsinnar, alls ekki.

Hér er verið setja fram ákveðna mælikvarða um það hvernig þessir kostir eru skoðaðir. Kostunum er síðan raðað eftir því hversu fýsilegir þeir eru út frá ákveðnum mælistikum. Það er mjög jákvætt að gera það en þær mælistikur þurfa síðan að ganga í gegnum alla kostina, þ.e. þær þurfa að vera sambærilegar í öllum tilfellum.

Hér er búið að leggja fram áætlun sem ég er í grundvallaratriðum mjög sáttur við. Nokkrir kostir eru settir í biðflokk sem útlit var fyrir og rætt hafði verið um að færu í nýtingu og ég hafði áhyggjur af að mundu verða í nýtingarflokki og þá nefni ég sérstaklega neðri hluta Þjórsár og þá kosti sem þar eru í skoðun.

Ég vil fyrst segja um neðstu virkjunina þar, Urriðafoss, að í mínum huga hefur hún aldrei komið til greina. Það er í sjálfu sér ekki út frá einhverjum flóknum álitsgerðum um laxagengd eða slíkt, heldur fyrst og fremst út frá þeirri fegurð sem það svæði hefur upp á að bjóða og því hversu mikilfenglegt fossakerfi blasir við ferðamönnum sem þarna fara um. Ég tími ekki að láta það landsvæði undir virkjun, það er bara þannig og það þurfa ekki í sjálfu sér að vera flóknari rök fyrir því að vilja ráðast í virkjun á slíku svæði eða ekki. Ég einfaldlega tími ekki að láta það náttúrufyrirbrigði heyra sögunni til. Það er alla vega ekkert í mínum huga sem réttlætir það á þessum stað og þessari stund í íslensku þjóðlífi að við gerum slíkt.

Komið hafa fram viðbótarupplýsingar vegna Hvamms- og Holtavirkjunar sem ég tel fulla ástæðu til að bíða eftir og sjá hvað kemur út úr. Ég hef að sjálfsögðu áhyggjur af áhrifum þeirra virkjana á fiskgengd í ánni, bæði urriða og lax, og ekki síst hvaða áhrif þetta hefur í heild sinni á alla ána og það útstreymi fæðu út í þau sjávarmið sem eru fyrir suðurströnd Íslands, þannig að það sé sagt hér.

Það eru líka tvær virkjanir sem eru á mörkum friðlandsins að fjallabaki sem ég vil gera að umtalsefni. Annars vegar Búlandsvirkjun og Hólmsárvirkjun við Atley hins vegar sem eru settar í biðflokk hér og ekki að ósekju. Þær eiga að mínu mati að fara í verndarflokk. Sú fyrri sem ég nefndi yrði á mörkum hálendisins og blasti í raun beint við Hólaskjóli og hálendismiðstöðinni þar sem einhvers konar austlægar inngöngudyr að hálendi Íslands. Þetta hefði í för með sér að Skaftáin mundi á þeim kafla, ef ég man rétt um það bil 10 kílómetra kafla, þorna upp og til yrði lón suðvestur af Hólaskjóli sem legði undir sig gróðursælan dal og mikilvægt beitarland fyrir bændur á svæðinu. Auk þess eru þarna svæði sem eru á náttúruminjaskrá. Mér finnst því margt mæla gegn þeirri virkjun.

Hin virkjunin sem ég nefndi, Hólmsá við Atley, fellur í raun og veru austan við Mýrdalsjökul á svokallaðri Öldufellsleið sem ekin er suður frá Mælifellssandinum, gríðarlega falleg leið og óspillt sem á ekki að mínu viti að fara með í virkjun.

Ég vil líka nefna hér sérstaklega Hagavatnsvirkjun vegna þess að það hefur verið dálítill þrýstingur á það að hún sé sett inn og jafnvel talað um að þar sé um að ræða mjög umhverfisvæna virkjun vegna þess að hún mundi hefta sandfok við Hagavatn og færa náttúruna aftur í það horf sem var fyrir 80 árum. Það er í sjálfu sér rétt að það mundi hún gera vegna þess að lónið var einum fjórum, fimm metrum hærra áður en stífla brast og það náttúrufyrirbrigði sem gengur undir nafninu Farið varð til sem er þriggja fossa kerfi í gegnum mjög þröngt gil. Vatnið liggur á tiltölulega vinsælli gönguleið sem teygir sig frá Þingvöllum í áttina að Hlöðuvöllum þar sem Hlöðufell stendur yfir Rótarsandinn og í austurátt að Hagavatni. Allt þetta svæði er umlukt sandi og þar er mikið sandfok og virkjun við Hagavatn mundi ekki breyta nokkrum sköpuðum hlut þar um. Það mundi eingöngu hafa í för með sér að tiltölulega lítil virkjun yrði til og náttúrufyrirbrigðið sem nefnist Farið mundi jafnframt heyra sögunni til. Gönguleiðin teygir sig síðan áfram frá Hagavatni í gegnum hinar svokölluðu Jarlhettur og upp að Skálparnesi sem er vestan við Hvítárvatn og tilheyrir gönguleið sem stundum hefur verið kölluð Steingrímsslóðin í höfuðið á hæstv. ráðherra Steingríms J. Sigfússonar og á eftir að verða mikið gengin á komandi árum og er mikið gengin um þessar mundir. Hún er vinsæl að sjálfsögðu vegna þess að hún liggur um óspillt landsvæði og óspillt landsvæði jafnframt á Reykjanesinu að stórum hluta. Ef gengið er frá Reykjanesvita, hinn svokallaði Reykjavegur sem er óslitin gönguleið frá Reykjanesvita austur að Þingvöllum, er í raun og veru gengið um óspillt landsvæði. Þess vegna eru þeir fjölmörgu virkjunarkostir sem settir eru í nýtingarflokk á Reykjanesi mikið áhyggjuefni. Fara þarf mjög vel í gegnum þá kosti sem þar eru á ferðinni og ræða sérstaklega áhrif þeirra á svæði sem er gríðarlega dýrmætt í borgarlandinu fyrir þá sem vilja leggja stund á útivist, sem á vaxandi vinsældum að fagna, og líka fyrir þá ferðamenn sem hingað vilja koma og geta þá tiltölulega fyrirhafnarlítið kynnt sér sýnishorn af jarðsögu landsins sem er auðvitað gríðarlega merkileg fyrir þá sem leggja stund á slík fræðistörf eða vilja einfaldlega sjá hvernig þessir miklu kraftar verka.

Þetta eru þau orð sem ég vildi leggja í púkkið við þessa umræðu í þessari umferð. Ég fagna því líka að hér eru Skrokkalda og Hágöngur komnar í biðflokk vegna þess að þær tilheyra sömu leið og ég nefndi hér áðan. Ég er þeirrar skoðunar að hálendið eigi að friða alveg og láta eiga sig í þessu samhengi.

Ég endurtek það sem ég sagði í upphafi að ég fagna því að tillaga þessi er komin fram og hlakka til að taka hana til umfjöllunar í framhaldinu.