140. löggjafarþing — 87. fundur,  24. apr. 2012.

heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.

718. mál
[19:11]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í andsvari hv. þingmanns fólst engin spurning. Hann ítrekaði hins vegar undrun sína á því að um þessa lagasetningu hefði ekki verið rætt í desember sl. Í sjálfu sér hef ég ekkert um það að segja. Staðreyndin er sú að við erum hér að ræða um frumvarp til laga um gerð Vaðlaheiðarganga núna og meira hef ég ekki um það að segja.