140. löggjafarþing — 87. fundur,  24. apr. 2012.

heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.

718. mál
[19:21]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Svo stór framkvæmd eins og gerð jarðganga af því tagi sem við ræðum um er aldrei áhættulaus, alveg sama hvort hún er opinber eða ekki. Þegar fjármálaráðuneytið biður Ríkisábyrgðasjóð um að meta áhættuna af þessari framkvæmd biður það Ríkisábyrgðasjóð um leið að draga fram þá áhættuþætti sem sérstaklega þarf að horfa til. Ríkisábyrgðasjóður horfir á vaxtastigið sem einn stærsta áhættuþáttinn og bendir á leið til að lágmarka þá áhættu.

Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan er framkvæmd eins og gerð Vaðlaheiðarganga aldrei áhættulaus (Forseti hringir.) en hún er áhættunnar virði.