140. löggjafarþing — 89. fundur,  26. apr. 2012.

störf þingsins.

[10:47]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka þátt í þeirri umræðu sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hóf varðandi meðferð IPA-styrkjamálsins svokallaða í utanríkismálanefnd í morgun.

Það vakti furðu mína þegar ég kom á fundinn, að vísu skal ég játa að ég kom 13 mínútum of seint á fundinn, að þá var verið að greiða atkvæði um hvort taka skyldi málið út. Nefndin var ekki fullskipuð og ég verð að leyfa mér að fullyrða að það er alsiða að beðið er með að taka mál út úr nefnd á fundum þar til nefndarmenn eru komnir, þeir sem ekki hafa boðað forföll, og að í það minnsta sé tekið tillit til þess þegar nefndin er sérstaklega fáliðuð. Nú var það þannig að búið var að kalla til tvo varamenn sem sátu einungis við þessa atkvæðagreiðslu og þurftu svo að vera annars staðar og nú mætti spyrja: Af hverju lá svona mikið á að taka þetta mál út? Er það á dagskrá á morgun? Nei, þá er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar þannig að þar eru mál til 1. umr.. Er það á dagskrá á mánudaginn? Nei, þá er fyrirspurnafundur á þinginu. Er það kannski á dagskrá á þriðjudaginn? Nei, þá er 1. maí. Hvað hastaði?

Nú ætla ég að segja mína skoðun á því hvað hastaði. Það var þannig að þetta mál hefur legið í utanríkismálanefnd vegna þess að ég held að formaður nefndarinnar viti að hann hafi ástæðu til að óttast að ekki sé meiri hluti fyrir þessu máli í nefndinni, meiri hluti fyrir að taka það út úr nefnd ef nefndin er fullskipuð þeim nefndarmönnum sem sæti eiga í þeirri ágætu nefnd. Þess vegna var gripið til, og ég nota orð hv. þm. Ásmundar Einars Daðasonar hér, klækjabragða og kalla þá inn á þeim tíma þegar nefndin var ekki fullskipuð til að koma málinu út.

Ég óskaði eftir því vegna þess að umræða um Evrópusambandið hefur tafist (Forseti hringir.) í meira en tvo mánuði, umræða sem beðið hefur verið um. Við erum að fara að ræða utanríkismálin í dag þar sem rætt verður um þessa styrki. (Forseti hringir.) Ég óskaði sérstaklega eftir því að þetta yrði geymt þar til þeirri umræðu væri lokið. Ekki var fallist á það og það er verulega dapurlegt að sjá hið nýja Ísland fara í gömlu pólitíkina (Forseti hringir.) og öll þau klækjabrögð sem hugsast getur. (Gripið fram í.)

(Forseti (ÁRJ): Forseti minnir á ræðutímann. Hann er tvær mínútur undir þessum lið og biður hv. þingmenn um að virða hann.)