140. löggjafarþing — 89. fundur,  26. apr. 2012.

störf þingsins.

[11:00]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Ég tek undir og fagna kjöri nýs biskups. Það er sannarlega ánægjulegt að sóknarprestur okkar Bolvíkinga sé nú orðin biskup og ég veit að þar var vel valið (Gripið fram í: Bíddu, …) þó að við söknum hennar auðvitað sem sóknarprests sem hefur unnið og þjónað okkur vel og farsællega síðustu 18 ár. Ég óska henni síðan farsældar í starfi.

Það hefur verið dálítið áhugavert að fylgjast með umræðunni í morgun. Umræðan hefur beinst að tvennu sem má kannski kalla eins konar helgimyndir eða táknmyndir sem ríkisstjórnin hefur viljað festa upp. Annars vegar lýtur hún að jafnréttismálum og það var sagt að það væri til marks um mikinn árangur í jafnréttismálum að hæstv. forsætisráðherra, hæstv. fjármálaráðherra og formaður fjárlaganefndar væru allt saman konur.

En hvernig hafa nú þessar konur beitt valdi sínu? Þær hafa gert það meðal annars með fjárlagagerðinni og við munum að það var í tíð hæstv. fyrrverandi heilbrigðisráðherra — sem var kona — sem sérstaklega hart var gengið fram í niðurskurði gagnvart heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og það var undir forustu formanns fjárlaganefndar — sem var kona — sem það var síðan innsiglað í löggjöfinni. Það var gert með þeim hætti að þessi niðurskurður leiddi sérstaklega til uppsagna á konum á landsbyggðinni. Þetta er raunveruleikinn. Það getur vel verið að menn geti fest upp einhverjar helgimyndir, einhverjar táknmyndir eins og hv. þm. Jónína Rós Guðmundsdóttir var að gera áðan, en raunveruleikinn er hins vegar þessi og hann er svona bitur.

Síðan var líka áhugavert að fylgjast með umræðunni og frásögninni af því hvernig unnið hefði verið í utanríkismálanefnd í morgun. Hæstv. ríkisstjórn hefur stært sig mjög mikið af lýðræðisumbótum og nú sjáum við hvernig lýðræðisumbæturnar koma fram í verki. Þær koma þannig fram að það er beitt gamaldags og úreltri klækjapólitík — sem ekki er þó úrelt, nei, vegna þess að ríkisstjórnin hefur tileinkað sér hana með alveg sérstökum ágætum og beitt henni núna í krafti stjórnarmeirihluta síns (Forseti hringir.) í utanríkismálanefnd til að smygla út máli sem er bullandi ágreiningur um innan hennar en verður auðvitað leiddur fram í umræðunni þótt síðar verði. (Gripið fram í: Gegn konum, gegn konum. …)