umræða um stöðu ESB-viðræðna.
Hæstv. forseti. Það efast enginn um að hæstv. utanríkisráðherra hefur margt að segja um umsóknarferlið og aðildarferlið að Evrópusambandinu. Hins vegar er ljóst að þegar þingmaður óskar eftir því að forsætisráðherra ræði þetta mikilvæga mál við þingheim hlýtur leiðtogi ríkisstjórnarinnar, verkstjórinn sjálfur, sem hafði ekki svo lítil orð um hversu mikilvægt það væri að skýra verkstjórnarvaldið og breyta öllu í ríkisstjórnarmynstrinu þannig að verkstjórinn sjálfur hefði skýrt vald, að hafa kjark til að koma hingað og tala við okkur um stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar, eins og margir hv. þingmenn stjórnarliðsins hafa komist að orði. (MSch: Og besta.) Að halda því fram, eins og hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar gerði, að ekki sé hægt að eiga djúpa umræðu um málið við forsætisráðherra (MSch: Það sagði ég ekki.) — maður verður einfaldlega hlessa. (MSch: Það sagði ég ekki.) Ég veit ekki á hvaða leið við erum (Forseti hringir.) ef verkstjórinn sjálfur getur ekki rætt þetta mál við þingheim.