umræða um stöðu ESB-viðræðna.
Virðulegi forseti. Mönnum hefur verið tíðrætt um klækjabrögð á fundi utanríkismálanefndar í morgun þegar ég og hv. þm. Lúðvík Geirsson komu þar inn til að taka út eitt mál. Ég verð að segja af því tilefni að hér hafa nýlega heilu og hálfu þingflokkarnir horfið út í nóttina til að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu um miðja nótt og aðrir þingflokkar hafa staðið að málþófi fram yfir miðnætti til að koma í veg fyrir afgreiðslu mála í tæka tíð fyrir tímafresti. (Gripið fram í: Og ríkisstjórnin.) Ef það er nú orðið að einhverjum sérstökum klækjabrögðum þegar varamenn eru kallaðir inn til að taka út mál er það ekki bara fáránlegt, það er sprenghlægilegt.