utanríkis- og alþjóðamál.
Frú forseti. Varðandi síðari spurninguna hef ég mörgum sinnum svarað henni í þessum sal. Svarið við henni er já.
Hv. þingmaður spyr líka hvort það sé ný stefna hjá Íslendingum að reyna með þessum hætti að freista fríverslunarsamninga. Það er ekki ný stefna. Við höfum í áratugi reynt að bæta stöðu okkar í viðskiptum við aðrar þjóðir með því að ná samningum af þessu tagi. Tæki okkar til þess hefur verið EFTA. Það er helsta viðfangsefni og verkefni þeirra góðu samtaka sem við höfum áratugum saman verið í. Þar höfum við alltaf lagt áherslu á tvennt, niðurfellingu á tollum af sjávarafurðum og höfum jafnframt alltaf reynt að greiða götu útflutnings á landbúnaðarafurðum líka. Þetta er algjörlega óbreytt af okkar hálfu.
Að því er Kína varðar er rétt að það hafa verið verulega aukin viðskipti og samskipti millum ríkjanna. Ferðamönnum fjölgaði t.d. um 80% frá Kína millum ára. Það er því eftir nokkru að slægjast þegar horft er til framtíðar en því miður eru viðskiptin enn allt of, allt of lítil.