140. löggjafarþing — 89. fundur,  26. apr. 2012.

utanríkis- og alþjóðamál.

761. mál
[16:12]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að ýmis verkefni hafa blasað við Evrópusambandinu og vandamál komið þar upp sem menn hafa þurft að takast á við eins og alltaf er frá einum tíma til annars. Það eru hins vegar langtímasjónarmið sem gera það að verkum að ég tel að við eigum að vera fullgildur aðili að því sambandi. Það er annars vegar sú menningarpólitíska afstaða að við séum hluti af þessari heimsálfu, menningarlega, sögulega og pólitískt, og eigum að taka fullan þátt í samstarfi hennar. Á hinn bóginn er sú staðreynd að þarna eru helstu markaðir okkar. Þetta eru helstu viðskiptalönd okkar og það er eðlilegt að við eigum aukið og vaxandi pólitískt samstarf við helstu viðskiptalönd okkar.

Hvað varðar vanda evrunnar er nú að mörgu leyti ágætt að við getum sagt með nokkurri vissu að þegar við sjáum fyrir endann á aðildarviðræðunum hafi nú mjög skýrst um framtíð evrunnar og þá enn frekar þegar við komum síðar að þeim tímamörkum að ákveða hvort við viljum fara inn í hana eða ekki. Hvað svo sem sagt verður um vanda evrunnar er það þannig að hvar í heiminum sem er getur hv. þingmaður fundið fólk sem vill kaupa evrur. Það vill láta af hendi raunveruleg verðmæti til að fá evrur í hendurnar. Það verður því miður ekki sagt um íslensku krónuna. Það er einfaldlega þannig um íslensku krónuna að miklu fleiri vilja losna við hana en eignast hana og þess vegna erum við hér með 1 þús. milljarða snjóhengju hangandi yfir hagkerfinu sem gerir það að verkum að við höfum þurft að loka því og læsa. Það er til lengri tíma stærsta ógnin við lífskjör á Íslandi og við sjálfstæði okkar sem þjóðar. Þess vegna er nauðsynlegt að við leitum samstarfs (Forseti hringir.) við aðrar þjóðir til að brjótast út úr þeirri herkví.