utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Ég er komin hingað upp til að ræða afstöðu mína til ESB-aðildarumsóknarinnar. Ég studdi þingsályktunartillögu þess efnis að Ísland sækti um aðild að ESB. Það var fyrir tæpum þremur árum og ástæðan fyrir stuðningi mínum var meðal annars sú að ég vildi kanna alla þá valkosti sem Ísland hefði eftir bæði bankahrun og gjaldmiðilshrun. Ég trúði líka loforðum sem féllu, meðal annars hér í þingsal, í umræðum um þingsályktunartillöguna, um að Ísland gæti fengið aðstoð við að afnema gjaldeyrishöftin og þar með til að leysa gjaldeyriskreppuna á innan við sex mánuðum.
Það var líka rætt um að við fengjum hraðmeðferð og að umsóknarferlið tæki sennilega ekki nema eitt og hálft ár. Nú eru liðin tæplega þrjú ár og ekkert bólar á aðstoð Evrópska seðlabankans við okkur og umsóknarferlið sjálft hefur tekið tvöfalt lengri tíma en gert var ráð fyrir.
Það kemur reyndar fram í skýrslunni sem við ræðum núna að allar líkur séu á því að umsóknarferlið muni lengjast fram yfir kosningar, þ.e. í að minnsta kosti eitt ár í viðbót. Þegar búið er að klára umsóknarferlið þarf að leggja samninginn fyrir þjóðina og ef þjóðin samþykkir eiga aðildarlönd ESB eftir að samþykkja þannig að hætta er á að við vitum ekki fyrr en eftir nokkur ár hvort Ísland verður aðildarland í Evrópusambandinu.
Þjóðin er á móti aðild að ESB. Hún var ekki á móti aðildinni samkvæmt skoðanakönnun þegar umsóknin var send inn en meiri hlutinn hefur snúist gegn aðild á þeim tíma sem núverandi ríkisstjórn hefur setið og á Icesave-málið örugglega drjúgan hlut að máli.
Ég er nú orðin þeirrar skoðunar að tímabært sé að leggja það í dóm þjóðarinnar hvort halda eigi áfram þessu umsóknarferli. Ástæðan er sú að ég óttast að umsóknarferlið muni standa yfir í mörg ár, meðal annars vegna vandræða Suður-Evrópuþjóða sem eru hluti af evrusvæðinu. Ég óttast að aðildarumsóknin skyggi á brýn úrlausnarmál í næstu kosningum ef ekki verður búið að taka afstöðu til þess hvort halda eigi aðildarumræðunum áfram. Í ályktun Samstöðu, sem ég er formaður fyrir, og er stjórnmálaflokkur sem stofnaður var í febrúar á þessu ári, er talað um að mikilvægt sé að leggja það í dóm þjóðarinnar hvort halda eigi áfram umsóknarferlinu vegna þess að það megi ekki gerast að aðildarviðræður komi í veg fyrir að fundin verði lausn á skuldavanda heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja, lausn á gjaldmiðilskreppunni eða lausn sem gerir okkur kleift að afnema gjaldeyrishöftin.
Í dag starfar Seðlabanki Íslands í samræmi við þá pólitísku stefnu að taka eigi upp evru og er ekki að skoða í alvöru aðra möguleika til að leysa gjaldmiðilskreppuna og afnema gjaldeyrishöftin í tengslum við upptöku annars gjaldmiðils. Kjósendur standa frammi fyrir þremur möguleikum hvað varðar leiðir til að afnema gjaldeyrishöftin. Þetta eru möguleikar sem eru í boði hjá nokkrum af þeim flokkum sem munu bjóða fram við næstu kosningar. Þetta er í fyrsta lagi skuldsetningarleið Samfylkingarinnar til að afnema gjaldeyrishöftin, harðindaleið, eins ég kalla hana, margra sjálfstæðismanna við að afnema höftin, og síðan skiptigengisleiðin, sem Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar, leggur til sem leið út úr gjaldeyrishöftunum og til að leysa gjaldmiðilskreppuna. Þetta eru leiðir til að afnema gjaldeyrishöft sem hafa ólíkar afleiðingar fyrir lífskjör í landinu.
Skuldsetningarleið Samfylkingarinnar gengur út á það, eins og kemur fram í skýrslu hæstv. utanríkisráðherra, að bíða eftir að aðild Íslands að Evrópusambandinu verði samþykkt, bæði hér á landi og í aðildarlöndunum, og fá þá yfirdráttarlán hjá Evrópska seðlabankanum til að fjármagna útstreymi snjóhengjunnar svokölluðu eða útstreymi hrægamma sem keyptu eignir sínar af kröfuhöfum gömlu bankanna á brotabroti af andvirði þeirra. Það er næstum því sama á hvaða verði þessar eignir verða að fara út, þeir munu alltaf koma út með gróða. Samfylkingin ætlar að leyfa þessum eignum að fara út á fullu verði og taka þúsund milljarða lán hjá Evrópska seðlabankanum sem greiða þarf vexti af og vextir í Evrópu eru háir, sérstaklega hjá svokölluðum vandræðalöndum eða löndum sem eru að fara í gegnum skuldakreppu eins og Ísland og fleiri lönd Suður-Evrópu. Við getum því átt von á því að greiða 30–50 milljarða á ári fyrir þetta yfirdráttarlán sem hefur það eitt markmið að aðstoða gíruga fjárfesta við að komast út úr hagkerfinu með því að setja áhættu þeirra yfir á skattgreiðendur, og ekki bara skattgreiðendur dagsins í dag heldur framtíðarinnar líka.
Síðan er það harðindaleið Sjálfstæðisflokksins. Margir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins hafa talað um að afnema eigi gjaldeyrishöftin í einu vetfangi og leyfa þetta útstreymi á þúsund milljörðum, það sé ekkert vandamál að gengið falli vegna þess að það muni síðan hækka aftur. Þessir aðilar virðast ekki hafa áhyggjur af gríðarlegum hækkunum verðs á innfluttum vörum þar til gengið fer upp aftur og ekki heldur af áhrifum þess á skuldir heimila og fyrirtækja sem eru verðtryggðar. Það er augljóst mál að jafnvel þó að gengi krónunnar hækki seinna meir aftur mun verðlag, verð á matvælum, hækka mikið og mörg fyrirtæki og einstaklingar verða gjaldþrota vegna verðbólgunnar sem fer inn í skuldir þeirra í gegnum verðtrygginguna. Þess vegna kalla ég þessa leið harðindaleið með tilvísun í móðuharðindin.
Fylgjendur þessara leiða tala líka um að nauðsynlegt sé að skera niður útgjöld ríkisins um 200 milljarða sem aflandskrónueigendur hafa keypt af ríkisskuldabréfum. Hallinn á ríkissjóði er að hluta til fjármagnaður með aflandskrónum eða útgáfu ríkisskuldabréfa sem aflandskrónueigendur hafa keypt. Þetta eru skammtímaríkisskuldabréf sem þeir munu selja um leið og þeir komast út úr landinu. Þá myndast gat í fjármálum ríkissjóðs upp á 200 milljarða og það á að skera niður til að loka því gati, samkvæmt þeim sem vilja fara hina svokölluðu harðindaleið.
Af tvennu illu verð ég að segja að skuldsetningarleið Samfylkingarinnar er þó skárri leið. Hún gefur þó möguleika á að dreifa lífskjaraskerðingunni yfir á lengra tímabil en harðindaleiðin. Hún kemur niður á fólki strax og það af miklum þunga.
Þriðja leiðin sem kjósendur geta valið er skiptigengisleiðin. Hún gengur út á það að leiðrétta gengi froðueignanna sem eru aflandskrónurnar og þessar kröfur sem hafa gengið kaupum og sölum milli þeirra sem áttu kröfur á eða lánuðu gömlu bönkunum og þeirra sem eru núna með þessar kröfur í höndunum, sem eru hrægammar. Ástæðan fyrir því að nauðsynlegt er að leiðrétta gengi þessara eigna er sú að þær voru upprunalega lánaðar hingað, streymdu hingað inn í landið til að fjármagna fjárfestingar útrásarvíkinganna sem nú eru orðnar verðlausar. Það er sem sagt ójafnvægi í hagkerfinu sem gerir það að verkum að eignirnar, sem þetta fjármagn, aflandskrónurnar og kröfurnar, voru notaðar til að fjármagna, hafa hrapað í verði og það þarf að leiðrétta það ójafnvægi. Það þarf að leiðrétta virði aflandskróna og eignir kröfuhafanna svokölluðu í samræmi við verðhrun á eignunum sem þessir peningar voru notaðir til þess að fjárfesta í.
Ég hef lagt til að við tökum upp nýkrónu. Það eru viðbrögð mín við gagnrýni á skatt á útstreymi fjármagns. Það er í raun og veru bara annað form á því að leggja skatt á útstreymi fjármagns. Skattur á útstreymi fjármagns hefur verið gagnrýndur fyrir það að ganga á eignarrétt kröfuhafa vegna þess að við þurfum að skattleggja útstreymið með mjög hárri prósentu, allt upp í 80%. Ástæðan er sú að þetta er mikið fjármagn sem bíður eftir að streyma út. Ef við tökum upp nýkrónu komumst við hjá þessum eignarrétti vegna þess að við erum þá bara að bjóða aflandskrónueigendum og eigendum krafna gömlu þrotabúanna að halda áfram að vera með eignir sínar í gömlu krónunni eða skipta þeim yfir í nýkrónu, það er bara þeirra val, og það væri náttúrlega best fyrir íslenskt hagkerfi að þeir héldu bara þessum froðueignum sínum í gömlu krónunni. En ef þeir kjósa geta þeir skipt yfir í nýkrónur á mjög lágu gengi.
Sem dæmi um hvernig þetta yrði gert og hefur verið gert, meðal annars í Vestur-Þýskalandi, mundu laun fara á 1:1 og síðan mundu skuldir heimilanna, sem líka þarf að leiðrétta um 20%, fara yfir þannig að 10 millj. kr. lán yrði 8 millj. kr. lán en 10 milljóna froðueign færi til dæmis á 2 milljónir, sem mundi jafngilda þá 80% skatti. Þessi leið, skiptigengisleiðin, eins og ég kalla hana, með upptöku nýrrar krónu mun leiðrétta bæði ytra ójafnvægi, sem sagt eyða þessari snjóhengju, og líka innra ójafnvægi, sem er ójafnvægið milli þeirra hér innan lands sem eiga og hinna sem skulda. (Forseti hringir.)
Herra forseti. Ég vil bara segja að lokum að ég tel að aðildarumsókn okkar sé komin í öngstræti og nauðsynlegt sé að leggja það í dóm þjóðarinnar hvort ekki eigi að draga hana til baka.