140. löggjafarþing — 89. fundur,  26. apr. 2012.

utanríkis- og alþjóðamál.

761. mál
[17:57]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að Samfylkingin hefur ekki nefnt það beinum orðum að hún ætli að taka yfirdráttarlán en það er augljóst að nákvæmlega það liggur að baki aðildarumsókninni. Þess vegna er svo nauðsynlegt að hætta að tala um annaðhvort aðild eða ekki aðild og fara að ræða um það hvernig við ætlum að leysa þetta vandamál.

Ætlið þið að taka lán eða ekki? Hvaða leið ætlið þið að fara? Ég mundi vilja fá svar við því frá hæstv. utanríkisráðherra í lok þessarar umræðu.

Síðan vil ég geta þess að ég hef miklar efasemdir um það bandalag sem Evrópusambandið er. Ég fékk bréf frá hagfræðingi sem ég hef haft samskipti við í mörg ár, hagfræðingi sem býr í Grikklandi, sem gat þess að við síðustu skuldaleiðréttingu hefðu háskólar og spítalar verið neyddir til að setja reiðufé sitt til ríkisins með því að kaupa ríkisskuldabréf sem síðan voru lækkuð um helming að virði. Það var gert til þess að einkageirinn í Grikklandi þyrfti ekki að taka jafnmikið á sig og annars hefði orðið. Háskólar og spítalar voru látnir kaupa verðlaus ríkisskuldabréf til að hlífa einkageiranum og þá sérstaklega þýskum fjárfestum.