neytendalán.
Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir hans framsögu. Ég vil taka undir áhyggjur hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar varðandi það hversu seint þetta mál kemur fram. Þetta er stórt mál og mikilvægt og það skiptir miklu máli að ramminn sem varðar neytendalán sé skýr og að við vinnum þetta vel.
Ég mundi vilja spyrja hæstv. ráðherra um 21. gr. um árlega hlutfallstölu kostnaðar. Þar er sagt að ef lánasamningur heimilar verðtryggingu skuli reikna þá tölu út frá þeim forsendum að verðlag, vextir og önnur gjöld verði óbreytt til loka lánstímans. Ég hefði áhuga á að heyra túlkun ráðherrans á þessum orðum. Hvernig mundi hann túlka orðin „verði óbreytt til loka lánstímans“?
Ég kíkti áðan á vefsíðu Landsbankans. Í reiknivélinni fyrir fasteignalán er það þannig að þegar maður velur verðtryggða kostinn kemur fyrir fram upp 2,5% sem valmöguleiki fyrir verðbólgu. Ég sem lánþegi þarf þá að breyta því miðað við þær verðbólgutölur sem eru staðreynd í dag, sem eru rúmlega 6%.
Ég vil líka spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji að Neytendastofa hafi nægilegar valdheimildir til að fylgja þessum lögum eftir. Það hefur ítrekað komið fram á fundum viðskiptanefndar um fjöldamörg mál að ákveðin skörun virðist vera á milli verkefna Neytendastofu og annarra eftirlitsstofnana og neytendur hafa verið mjög ósáttir við það hversu lítið Neytendastofa getur beitt sér.
Ég vil líka spyrja hæstv. ráðherra — þetta er að vísu stuttur tími en ég mun fara nánar í gegnum það í ræðu minni — hvort hann telji ekki ástæðu til að setja samræmdar reglur fyrir fasteignalán, sem mundu sérstaklega fjalla um fasteignalánin. Við erum að fara að ræða hér á eftir lög um Íbúðalánasjóð. Þar gilda til dæmis ákveðnar reglur varðandi hámark á veðhlutfalli lána, en sambærilegar reglur virðast hins vegar ekki gilda fyrir fasteignalán almennt á markaðnum og ekki heldur varðandi lánstíma eða raunar þau úrræði sem skuldarar eiga rétt á hjá Íbúðalánasjóði — að bjóða (Forseti hringir.) upp á sambærileg úrræði almennt á lánamarkaði fyrir fasteignalán.