140. löggjafarþing — 93. fundur,  2. maí 2012.

störf þingsins.

[15:01]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Þann 28. apríl sl. birtist frétt í Fréttablaðinu um að þrotabú Kaupþings og Klakka hefðu gefið eftir 250 milljarða kr. hvort. Ég tala svona hægt til að menn nái tölunni, þetta eru gífurlegar upphæðir. Þetta eru 500 milljarðar, þetta er nærri því Icesave, þetta er helmingurinn af skuldum heimilanna vegna íbúða — og þetta er gefið eftir. Ég spyr hv. þm. Helga Hjörvar, formann efnahags- og viðskiptanefndar, hvort ríkisstjórnin hafi gert eitthvað til að koma í veg fyrir svona lagað.

Ég hef margoft rætt það að þetta er vegna þess að það er veila í hlutabréfaforminu, menn eru að kaupa hlutabréf þvers og kruss, krosseignarhald var á milli Existu sem seinna hét Klakki og Kaupþings og við erum að sjá afleiðingarnar í þessari niðurfellingu. Þessir fjármunir voru aldrei til en samt eru þeir sýndir og árið áður, þ.e. 2007, fékk þetta ágæta fyrirtæki, Klakki, áður Exista, 500 milljónir evra, hálfan milljarð evra, að láni í alþjóðlegu bankaútboði.

Ég spyr hv. þm. Helga Hjörvar hvort hann telji eðlilegt að einstaklingar — það voru í hæsta lagi tíu einstaklingar sem áttu þetta — fái fellda niður 500 milljarða, þ.e. á að giska 50 milljarða á mann. Skekkjumörkin eru milljarður og venjulegt fólk vinnur alla starfsævina fyrir 300–400 milljónum. Þetta eru gífurlegar upphæðir. Ég spyr hv. þingmann: Telur hann þetta eðlilegt? Er eitthvað verið að vinna gegn þessu og ætlar hann að reyna að breyta þessu?