140. löggjafarþing — 93. fundur,  2. maí 2012.

störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti hvetur hv. þingmann til að virða þær reglur sem viðgangast í ræðustóli Alþingis og ávarpa forseta í 3. persónu.

Forseti hefur þegar fengið þau skilaboð frá viðkomandi ráðuneytum vegna þessara fyrirspurna að eitthvað dragist að svara en mun ítreka það að kallað sé eftir þessum svörum.