breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég er afskaplega sátt við að leggja fram þessa tillögu. Andstaða einstaka hagsmunaaðila við þessar breytingar kemur mér ekki á óvart, sérstaklega þegar maður horfir til þess á hvaða grunni sú gagnrýni er sett fram. Eins og ég rakti í framsögu minni áðan er þetta kannski tvíþætt, menn telja að með stærra ráðuneyti muni þeir missa aðganginn að ráðherranum. Það kom mjög skýrt fram að menn töldu að það yrðu lengri boðleiðir til ráðherrans og að þessar hefðbundnu atvinnugreinar, landbúnaður og sjávarútvegur, mundu ekki fá eins mikið vægi í stjórnsýslunni þegar þeim væri fyrir komið í einu ráðuneyti með nýsköpun, ferðamálum, hugverkaiðnaðinum og iðnaðinum öllum. Þetta voru helstu forsendurnar og ég skil alveg þær áhyggjur. En ég tel að með tilliti til nýrra tíma, nýrra atvinnugreina, nýrra viðhorfa, eigi stjórnsýslan (Forseti hringir.) að bregðast við og vera skipulögð þannig að hún geti sem best þjónað öllum þessum (Forseti hringir.) atvinnugreinum og með sem jöfnustum hætti.