breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Ármannssyni fyrir ágæta ræðu og yfirferð yfir sjónarmið hans og þeirra sjálfstæðismanna. Ég hjó eftir því í fyrri part ræðu hans að fjallað var um ófullnægjandi málsmeðferð varðandi efnahags- og viðskiptaráðuneytið og ég ætla að nota þetta andsvar í að ræða fyrst og fremst um það. Í nefndarálitinu kemur fram að hugmyndir um þær breytingar hafi komið fram miklu síðar en aðrar breytingar. Eins og kemur fram í textanum á bls. 2 „standa þær breytingar að því er virðist fyrst og fremst í sambandi við ráðherrabreytingar um áramótin og bera þess merki að vera með einum eða öðrum hætti afleiðing þeirra mannaskipta sem þá áttu sér stað.“
Mig langar, frú forseti, að vitna í ræðu fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, hv. þm. Árna Páls Árnasonar, í fyrri umræðu þegar hann sagði, með leyfi forseta:
„Breytingin að því er varðar efnahags- og viðskiptaráðuneytið hins vegar og uppskiptingu þess og niðurlagningu er óunnin, órædd nokkurs staðar utan ríkisstjórnarinnar sjálfrar og órökstudd.“
Seinna í ræðu sinni segir hann:
„Það er ekkert fjallað um kosti eða galla þeirrar hugmyndar og satt að segja er rökstuðningurinn fyrir þessari breytingu með því allra rýrasta sem sést hefur, held ég, í sögu breytinga á Stjórnarráðinu, rétt röskar tvær blaðsíður og engin efnisleg greining sett fram.“
Nú vil ég spyrja hv. þingmann, þar sem hann situr í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og fjallaði þar af leiðandi um málið á þeim tveimur og hálfa sólarhring sem nefndin gaf sér í þessa miklu vinnu, hvort þess sjái stað einhver svör við andstöðu og þeim spurningum sem hv. þm. Árni Páll Árnason varpaði fram í ræðu sinni, hvort hv. þm. Birgir Ármannsson hafi í meðförum nefndarinnar orðið þess áskynja að menn væru að reyna að byggja undir þennan rökstuðning og koma með (Forseti hringir.) greiningu og rökstuðning fyrir því að þetta væri skynsamlegt.