140. löggjafarþing — 93. fundur,  2. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[22:08]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin og fagna því að hv. þingmaður tekur undir þá skoðun sem var almenn, ég held ég fari rétt með að það var samhljómur um það og þvert á flokka, að ráðherra kæmi inn með aðstoðarmenn og síðan færu þeir út með honum.

Hv. þingmaður ræddi það ítarlega í upphafi ræðu sinnar að töluvert starf hefði verið unnið í Framsóknarflokknum, í grasrótinni, einmitt um það hvernig best væri að skipa Stjórnarráðið. Hv. þingmaður sagði, ég held að ég hafi tekið rétt eftir, að tekið hefði verið jákvætt í það að vera með aðstoðarráðherra. Mig langar að biðja hv. þingmann um að fara aðeins betur yfir það vegna þess að ég er reyndar hlynntur því að skoða það mál. Ég hef sagt það áður að ég tel að þá umræðu eigum við einmitt að þroska og ræða þetta á eðlilegum grunni, og ég bið hv. þingmann að fara aðeins betur yfir það.